Körfubolti

Þrír leik­menn Milwaukee Bucks skráðu sig saman í sögu­bækurnar

Siggeir Ævarsson skrifar
Brook Lopez skoraði 39 stig í nótt, það mesta sem hann hefur skorað á ferlinum
Brook Lopez skoraði 39 stig í nótt, það mesta sem hann hefur skorað á ferlinum Milwaukee Bucks

Milwaukee Bucks unnu tæpan sigur í nótt á einu lélegasta liði NBA deildarinnar, Washington Wizards, 131-128. Sigurinn fer þó í sögubækurnar þar sem þrír leikmenn liðsins skoruðu yfir 30 stig.

Er þetta í fyrsta skipti í sögu liðsins þar sem þrír leikmenn skora yfir 30 stig í einum og sama leiknum. Miðherjinn Brooks Lopez var stigahæstur með 39 stig og jafnaði þar sitt persónulega stigamet í leik.

Stórstjörnur liðsins, Giannis Antetokounmpo og Damian Lillard, létu ekki sitt eftir liggja og settu báðir 31 stig á töfluna. Lillard bætti við tíu stoðsendingum og Antetokounmpo níu fráköstum. Lopez var ekkert að stressa sig á að rífa niður fráköst frekar en fyrri daginn þrátt fyrir að vera 216 cm á hæð en nældi þó í sex slík.

Wizards eru eins og áður sagði eitt slakasta lið deildarinnar. Aðeins tveir sigrar komnir í hús í 15 tilraunum og liðið tapaði sínum áttunda leik í röð í nótt en gerði þó stálheiðarlega tilraun til að skemma þakkargjörðarhátíðina fyrir Bucks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×