Innlent

Öflugur skjálfti tals­vert langt frá kvikuganginum

Árni Sæberg skrifar
Skjálftinn varð vestur af Kleifarvatni.
Skjálftinn varð vestur af Kleifarvatni. Stöð 2/Arnar

Jarðskjálfti af stærðinni 3,7 mældist klukkan 05:35 í morgun, um þrjá kílómetra vestur af Kleifarvatni. Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Með tilkynningunni fylgi kort sem sýnir hvar upptök skjálftans voru.

Eins og sjá má hér voru upptök skjálftans talsvert langt frá kvikuganginum sem liggur undir Grindavík.Veðurstofa Íslands

Þá segir að áfram mælist smáskjálftavirkni yfir kvikuganginum, norðnorðaustur af Grindavík. Um 370 jarðskjálftar hafi mælst þar frá miðnætti. Í gær hafi mælst rétt um 1.800 skjálftar yfir kvikuganginum. 

„Engin teljandi merki eru um breytta virkni yfir ganginum í nótt og gosórói hefur ekki mælst á jarðskjálftamælum okkar á svæðinu.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×