Sport

Dag­skráin í dag: Grind­víkingar í opinni dag­skrá, undan­keppni EM og For­múlan í Las Vegas

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ólafur Ólafsson og félagar hans í Grindavík mæta til leiks í Subway-deild karla í körfubolta í dag.
Ólafur Ólafsson og félagar hans í Grindavík mæta til leiks í Subway-deild karla í körfubolta í dag. Vísir/Hulda Margrét

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á heilar 16 beinar útsendingar á þessum fína laugardegi.

Stöð 2 Sport

Grindvíkingar verða í eldlínunni í Subway-deildum karla og kvenna í dag og geta vonandi nýtt tækifærið til að dreifa huganum frá jarðskjálftum og mögulegu eldgosi. Grindavík og Þór Akureyri mætast í Subway-deild kvenna klukkan 13:45 og klukkan 16:45 mætast Grindavík og Hamar í Subway-deild karla. Báðir leikir verða sýndir í opinni dagskrá.

Klukkan 20:00 er svo komið að Subway-körfuboltakvöldi þar sem farið verður yfir síðustu umferð í Subway-deild karla.

Stöð 2 Sport 2

Körfuboltinn fær einnig sitt pláss á Stöð 2 Sport 2 þar sem Zaragoza og Dreamland Gran Canaria eigast við í spænsku ACB-deildinni klukkan 16:50 áður en Charlotte Hornets tekur á móti New York Knicks í NBA-deildinni klukkan 23:00.

Stöð 2 Sport 4

Mallorca Ladies Golf Open á LET-mótaröðinni í golfi heldur áfram frá klukkan 13:00 áður en CME Group Tour Championship á LPGA-mótaröðinni tekur við klukkan 19:00.

Stöð 2 Sport 5

Boðið verður upp á tvíhöfða í Garðabænum þar sem Stjarnan tekur á móti Haukum í bæði Subway-deild karla og kvenna. Stelpurnar ríða á vaðið klukkan 13:50 áður en strákarnir taka við keflinu klukkan 16:50.

Vodafone Sport

Að lokum verður boðið upp á bland í poka á Vodafone Sport. Formúla 1 tekur daginn snemma í Las Vegas og fór þriðja æfing helgarinnar fram klukkan 04:25 í nótt. Bein útsending frá tímatökunni hefst svo stundvíslega klukkan 07:55.

Þá verður einnig boðið upp á þrjá leiki í undankeppni EM, pílukast og einn leik í NHL-deildinni í íshokkí. Armenía og Wales mætast í undankeppni EM klukkan 13:50, Lettar taka á móti Króötum klukkan 16:50 og Ísrael og Rúmenía mætast klukkan 19:35.

Grand Slam of Darts heldur svo áfram klukkan 21:45 áður en Bruins og Canadiens mætast í NHL-deildinni klukkan 00:05 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×