Erlent

Hafa náð fót­festu á austur­bakka Dnipro

Samúel Karl Ólason skrifar
Úkraínskir landgönguliðar á Dnipro-á í Kherson-héraði. Úkraínumenn hafa náð fótfestu á vesturbakka árinnar og eru sagðir reyna að flytja bryn- og skriðdreka yfir Dnipro.
Úkraínskir landgönguliðar á Dnipro-á í Kherson-héraði. Úkraínumenn hafa náð fótfestu á vesturbakka árinnar og eru sagðir reyna að flytja bryn- og skriðdreka yfir Dnipro. AP/Alex Babenko

Úkraínskir landgönguliðar vinna nú hörðum höndum að því að stækka fótfestu þeirra á austurbakka Dnipro-ár í Kherson-héraði. Harðir bardagar hafa geisað á svæðinu en Úkraínumenn vilja koma bryndrekum yfir ánna.

Landgönguliðarnir hafa náð fótfestu við þrjú þorp á austurbakkanum. Þeir eru þó ekki góðri stöðu og eru sagðir vera færri en rússneskir hermenn á svæðinu, eins og víðast hvar annarsstaðar á vígstöðvum Úkraínu. Þeim hefur þó tekist að skera á minnst eina birgðalínu Rússa á svæðinu og binda vonir við að geta sótt fram.

Samkvæmt heimildarmönnum Wall Street Journal hafa Úkraínumenn flutt nokkra brynvarða Humvee-jeppa yfir ána og að minnsta kosti einn bryndreka. Takist þeim að flytja frekari herafla og bryn- og skriðdreka yfir ána vonast þeir til að geta brotið sér leið í gengum varnir Rússa.

Varnir Rússa á þessu svæði eru mun umfangsminni en þær eru í Sapórisjíahéraði, í suðurhluta Úkraínu, þar sem Úkraínumenn reyndu að sækja fram í sumar. Það reyndist gífurlega erfitt og þá að miklu leyti vegna stórra jarðsprengjusvæða og umfangsmikilla varna sem Rússar höfðu byggt upp á svæðinu eins og skotgrafir og byrgi.

Þessar varnir eru ekki til staðar í nærri því sambærilegu umfangi í Kherson og fari sókn Úkraínumanna gífurlega vel gætu þeir skorið á birgðalínur Rússa til Krímskaga. Það tæki þó langan tíma.

Allt frá því Rússar hörfuðu frá vesturbakka Dnipro-ár í nóvember í fyrra hafa Úkraínumenn gert regluleg áhlaup yfir ána. Þar hafa þeir ráðist á rússneska hermenn, tekið fanga eða upplýsingar og hörfað aftur.

Áin sjálf er náttúrulegur tálmi sem hefur gert Rússum kleift að stytta víglínuna og styrkja varnir sínar í Sapórisjía.

Nú hafa Úkraínumenn náð fótfestu á austurbakkanum og koma þær fregnir frá báðum fylkingum. Rússneskir herbloggarar segja hart barist við bæinn Krynky. það hefur verið staðfest af myndefni sem birt hefur verið á netinu.

Hart barist í austri

Rússar hafa undanfarnar vikur sótt mjög hart fram gegn Úkraínumönnum í austurhluta landsins á nokkrum vígstöðvum. Mjög svo harðir bardagar hafa geisað við bæinn Avdívka, sem Rússar hafa reynt að umkringja.

Avívkda er í raun úthverfi Dónetsk-borgar og hefur verið lýst sem hliðinu að borginni, sem er höfuðborg samnefnds héraðs og hefur verið í höndum Rússa frá 2014. Þá innlimuðu þeir Krímskaga ólöglega og studdu aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu.

Bærinn hefur því verið í fremstu víglínu frá 2014 og er mjög víggirtur. Myndefni frá Avdívka gefur til kynna að Rússar hafi orðið fyrir gífurlegu mannfalli á svæðinu.

Sjá einnig: Rússar sækja hart fram í austri

Rússar hafa einnig gert árásir við Kúbíansk og sunnar í Dónetskhéraði en sérfræðingar bandarísku hugveitunnar Institute for the study of war segja Rússa líklega vilja ná frumkvæðinu í átökunum að nýju og stýra ferðinni að fullu aftur.

Harðir bardgar geisa á nokkrum stöðum í austurhluta Úkraínu.Getty/Diego Herrera Carcedo

Í einföldu máli snýst það að hafa frumkvæðið í hernaði um að þvinga andstæðinginn til að bregðast við aðgerðum þínum og þannig stýra hvar bardagar eiga sér stað og hvenær.

Úkraínumenn höfðu frumkvæðið í vor en enginn virðist hafa það þessa stundina.

Takist Úkraínumönnum að bæta stöðu sína í Kherson og mögulega sækja fram í héraðinu, myndu Rússar líklega þurfa að flytja hersveitir úr austri til að aðstoða við varnir í Kherson.

Varpa tugum sprengja á degi hverjum

Ári eftir að Rússar hörfuðu frá Kherson-borg, einu héraðshöfuðborginni sem Rússar höfðu náð í innrásinni sem hófst í febrúar í fyrra, hafa þeir gert fjölmargar loft- og stórskotaliðsárásir á borgina, jafnvel þó Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hafi innlimað Kherson-hérað og borgina í rússneska sambandsríkið í fyrra.

Úkraínumenn segja tugum sprengja varpað á borgina og nærliggjandi byggðir á degi hverjum. Embættismenn segja 2.706 sprengjum hafa verið varpað á héraðið í síðasta mánuði.

Blaðamenn Washington Post ræddu nýverið við Oleksandr Andrienko, sem býr í þorpinu Kozatske, skammt frá Kherson. Hann segir árásirnar linnulausar. Um tvö hundruð manns halda enn til í þorpinu, en það er minna en tíu prósent af íbúum þorpsins fyrir innrás Rússa.

Andrienko missti á dögunum annan fótinn í sprengjuárás Rússa. Tveimur vikum fyrir það var handsprengju varpað úr dróna á bíl hans og særðist hann þá á öxl.

„Þorpið okkar er næstum því farið,“ sagði Andrienko. „Stundum skjóta þeir úr skriðdrekum eða varpa loftsprengjum. Þeir rústa öllu. Ég veit ekki af hverju þeir skjóta á okkur með þessum hætti.“

Læknir sem einnig var rætt við segir þorp á bökkum Dnipro verða fyrir sérstaklega mörgum árásum. Hann segir að hann hafi verið fangelsaður og pyntaður af Rússum þegar Kherson var hernumin.

„Þeir vilja ógna okkur og brjóta þjóð okkar á bak aftur,“ sagði læknirinn.


Tengdar fréttir

Salúsjní segir þrátefli á víglínunni

Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir ólíklegt að Úkraínumenn muni ná að brjóta sér leið í gegnum varnir Rússa og að stríðið í Úkraínu sé að færast í nýjan fasa staðbundins hernaðar og þreytistríðs (e: attritional warfare). Hann segir nýja tækni lykilinn að því að gera Úkraínumönnum kleift að sigra Rússa.

Úkraínsk Rússahækja skotin á Krímskaga

Oleg Tsarev, fyrrverandi þingmaður í Úkraínu, er á sjúkrahúsi og sagður í alvarlegu ástandi eftir að hann var skotinn á Krímskaga síðustu nótt. Tsarev er sakaður um að hafa svikið Úkraínu og gengið til liðs við Rússa.

Njósnarar þjálfaðir af CIA heyja skuggastríð gegn Rússum

Hópar úkraínskra njósnara sem hafa náin tengsl við Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) og hafa jafnvel verið þjálfaðir í Bandaríkjunum eru sagðir heyja eigið stríð gegn Rússlandi í skuggunum. Þeir eru meðal annars sagðir hafa myrt Daríu Dugina í sprengjuárás, samverkamenn Rússa í austurhluta Úkraínu og rússneska hermenn.

Segja Rússa taka eigin hermenn af lífi

Yfirmenn í rússneska hernum taka eigin hermenn sem neita að fylgja skipunum af lífi og hafa hótað því að myrða heilu hersveitirnar, hörfi þær af víglínunum í Úkraínu. Þykir það til marks um lélegan baráttuanda rússneskra hersveita.

Gengur illa að auka framleiðslu skotfæra

Ætlanir Evrópusambandsins varðandi sendingar skotfæra til Úkraínu virðast ekki ætla að ganga eftir. Vandræði Evrópuríkja við að auka framleiðslu skotfæra gæti komið niður á vörnum Úkraínumanna og veitt Rússum ákveðið forskot.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×