Sport

Dag­skráin í dag: FA-bikarinn, pílu­kast, rafíþróttir og ís­hokkí

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Charlton Athletic heimsækir Cray Valley, sem leikur í áttundu efstu deild Englands, í FA-bikarnum í kvöld.
Charlton Athletic heimsækir Cray Valley, sem leikur í áttundu efstu deild Englands, í FA-bikarnum í kvöld. Steven Paston/PA Images via Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafona bjóða upp á fimm beinar útsendingar á þessum fína miðvikudegi þar sem farið verður um víðan völl.

Við hefjum leik strax klukkan 10:00 fyrir hádegi á NHL On The Fly á Vodafone Sport þar sem NHL-deildinni í íshokkí er gerð góð skil. Klukkan 00:35 eftir miðnætti er svo komið að viðureign Hurricans og Flyers í NHL-deildinni á sömu rás.

Það er þó ekki bara íshokkí sem verður á Vodafone Sport í dag því klukkan 19:00 hefst bein útsending frá fimmta degi Grand Slam of Darts í pílukasti.

Þá verður viðureign Cray Valley og Charlton Athletic í FA-bikarnum í knattspyrnu sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 klukkan 19:35 og klukkan 20:00 verður Föruneyti Pingsins á sínum stað á Stöð 2 eSport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×