Sport

Dag­skráin í dag: Vals­menn í Ólafssal, ítalski boltinn og Evrópudeildin í körfu­bolta

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Valur sækir Hauka heim í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld.
Valur sækir Hauka heim í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. vísir/vilhelm

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á átta beinar útsendingar á þessum fína föstudegi.

Stöð 2 Sport

Deildarmeistarar Vals mæta í heimsókn í Ólafssal þar sem Haukar taka á móti þeim í Subway-deild karla í körfubolta klukkan 19:00. Að leik loknum tekur Subway Körfuboltakvöld við keflinu og gerir umferðina upp.

Stöð 2 Sport 2

Ítalski boltinn á heima á Stöð 2 Sport 2 og klukkan 17:20 tekur Sassuolo á móti Salernitana. Klukkan 19:35 er svo komið að Alberti Guðmundssyni og félögum í Genoa þegar þeir taka á móti Hellas Verona.

Stöð 2 Sport 4

ANNIKA driven by Gainbridge at Pelican mótið á LPGA-mótaröðinni í golfi heldur áfram á Stöð 2 Sport 4 klukkan 15:00.

Vodafone Sport

NHL On The Fly verður á dagskrá klukkan 10:00, en klukkan 19:25 hefst bein útsending frá viðureign Barcelona og Crvena Zvezda Belgrade í Evrópudeildinni í körfubolta.

Við lokum svo dagskránni á viðureign Panthers og Hurricanes í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 00:05 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×