Sport

Dag­skráin í dag: Nýliðaslagur í Subway deildinni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Douglas Wilson hefur farið frábærlega af stað á tímabilinu með Álftanesi
Douglas Wilson hefur farið frábærlega af stað á tímabilinu með Álftanesi Vísir/Hulda Margrét

Mánudagar eru ekki til neinnar mæðu á íþróttarásum Stöðvar 2 og Vodafone. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í úrvali dagsins, beinar útsendingar verða frá íslenskum körfubolta, þýskum og ítölskum fótbolta og íshokkíi vestanhafs. Rafíþróttastöðin Stöð 2 eSport fer svo yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikjanna. 

Stöð 2 Sport 

19:05 – Bein útsending frá leik Álftaness og Hamars í 6. umferð Subway deildar karla. 

Stöð 2 Sport 3

17:20 – Bein útsending frá leik Frosinone og Empoli í ítölsku úrvalsdeildinni.

19:35 – Bein útsending frá leik Torino og Sassuolo í ítölsku úrvalsdeildinni.

Vodafone Sport 

17:25 – Bein útsending frá leik SV Werder Bremen og Eintracht Frankfurt í þýsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. 

00:05 – Bein útsending frá leik Florida Panthers og Columbus Blue Jackets í NHL.

Stöð 2 eSport

20:00 – GameTíví: Óli Jóels, Kristján Einar, Tryggvi og Dói koma saman og spila heitustu tölvuleikina hverju sinni.

23:00 – Tölvuleikjaspjallið: Arnór Steinn og Gunnar fjalla um nýja leiki og gamla, taka viðtöl við fólk úr bransanum og margt fleira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×