Sport

Dag­skráin í dag: Körfu­bolta­kvöld, Refirnir hans Mares­ca, ís­hokkí og margt fleira

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Jamie Vardy og félagar eru í beinni.
Jamie Vardy og félagar eru í beinni. Vísir/Getty Images

Það er nóg um að vera á Stöð 2 Sport í dag og kvöld.

Stöð 2 Sport

  • Klukkan 19.00 er leikur Keflavíkur og Hauka í Subway-deild karla í körfubolta á dagskrá.
  • Klukkan 21.20 er Körfuboltakvöld á dagskrá. Þar verður farið yfir umferðina í Subway-deild karla.

Stöð 2 Sport 2

  • Klukkan 19.35 er leikur Bologna og Lazio í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta, á dagskrá.

Stöð 2 Sport 3

  • Klukkan 19.35 er leikur Sheppey United og Walsall í þeirri elstu og virtustu, ensku FA bikarkeppninni í knattspyrnu, á dagskrá.

Stöð 2 Sport 4

  • Klukkan 03.30 er TOTO Japan Classic-mótið í golfi á dagskrá. Mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni.

Vodafone Sport

  • Klukkan 09.05 er NHL on The Fly á dagskrá.
  • Klukkan 14.25 er fyrsta æfing helgarinnar fyrir komandi kappakstur í Formúlu 1 á dagskrá.
  • Klukkan 17.55 er komið að tímatökunni í F1.
  • Klukkan 19.55 fá Refirnir í Leicester City, topplið ensku B-deildarinnar, Leeds United í heimsókn. Bæði lið féllu úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
  • Klukkan 00.05 er leikur St. Louis og New Jersey í NHL-deildinni í íshokkí á dagskrá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×