Sport

Verðlaunaféð á Rogue Invitational tók mikið stökk af því að Bitcoin hækkaði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björgvin Karl Guðmundsson verður fulltrúi Íslands á Rogue Invitational og kemst vonandi í eitthvað af þessum milljónum í boði.
Björgvin Karl Guðmundsson verður fulltrúi Íslands á Rogue Invitational og kemst vonandi í eitthvað af þessum milljónum í boði. @bk_gudmundsson

Björgvin Karl Guðmundsson og kollegar hans sem keppa á Rogue Invitational stórmótinu hafa örugglega fagnað góðu gengi Bitcoin á markaðnum síðustu daga.

Aldrei áður hefur verðlaunafé á þessu árlega stórmóti verið svona hátt. Þetta er eitt stærsta CrossFit mót ársins og það sést líka á háu verðlaunafé sem er í boði.

Rogue lagði til eina milljón dollara í peningum og það var strax ljóst að verðlaunaféð færi aldrei undir eina milljón og 275 þúsund dollara sem jafngildir 179 milljónum íslenskra króna.

Rogue keypti nefnilega líka Bitcoin fyrir 275 þúsund dollara en það var vitað að sú upphæð gæti hækkað færi gengi Bitcoin upp.

Bitcoin hefur síðan verið á hraðri uppleið síðustu daga sem þýddi að samkvæmt síðustu athugun var verðlaunaféð komið upp í 1,62 milljónir dollara eða 227 milljónir íslenskra króna. Morning Chalk Up segir frá þessu í fréttabréfi sínu.

Verðlaunaféð á mótinu í fyrra var 1,25 milljónir en 1,4 milljónir dollara árið 2021. Það var mikil hækkun frá 2020 þegar verðlaunaféð var 375 þúsund dollarar.

Keppnin á Rogue Invitational hefst í kvöld en þetta er boðsmót fyrir besta CrossFit fólk heims auk þess að sem nokkrir fengu tækifæri til að vinna sér sæti í gegnum undankeppni.

Björgvin Karl og Anníe Mist Þórisdóttir voru upphaflega fulltrúar Íslands en Anníe Mist hætti við keppni þegar kom í ljós að hún var ólétt af öðru barni sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×