Sport

Dag­skráin í dag: Línur að skýrast í Meistara­deild Evrópu og NBA-deildin fer af stað

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
LeBron James og félagar opna tímabilið í NBA-deildinni með heimaleik gegn ríkjandi meisturum.
LeBron James og félagar opna tímabilið í NBA-deildinni með heimaleik gegn ríkjandi meisturum. Vísir/Getty

Að venju eru nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Meistaradeild Evrópu karla í forgrunni en þar fara línur að skýrast eftir leiki vikunnar þar sem riðlakeppnin er þá hálfnuð. Þá fer NBA-deildin í körfubolta af stað með tveimur stórleikjum.

Stöð 2 Sport

  • Klukkan 19.05 er leikur Breiðabliks og Þór Akureyrar í Subway-deild kvenna í körfubolta á dagskrá.
  • Klukkan 21.05 er Körfuboltakvöld Extra á dagskrá. Þar verður farið yfir ýmsa hluti úr Subway-deild karla í körfubolta.

Stöð 2 Sport 2

  • Klukkan 11.55 er leikur Inter og Salzburg í UEFA Youth League, Meistaradeild Evrópu U-19 ára liða, á dagskrá.
  • Klukkan 13.55 er leikur Braga og Real Madríd í sömu keppni á dagskrá.
  • Klukkan 18.30 er Meistaradeildarmessan á dagskrá en þar verður fylgst með öllum leikjum dagsins í beinni útsendingu. Þegar leikjum kvöldsins lýkur fara Meistaradeildarmörkin af stað, hefjast þau kl. 21.00.
  • Klukkan 23.30 hefst tímabilið í NBA-deildinni þegar Los Angeles Lakers tekur á móti Denver Nuggets. Gestirnir eru ríkjandi meistarar en liðin mættust í úrslitum Vesturdeildar á síðustu leiktíð.
  • Klukkan 02.00 er leikur Golden State Warriors og Phoenix Suns á dagskrá.

Stöð 2 Sport 3

  • Klukkan 16.35 hefst útsending frá Tyrklandi þar sem Galatasaray tekur á móti Bayern München. Bæði lið eru ósigruð í A-riðli.
  • Klukkan 18.50 er leikur Sevilla og Arsenal á dagskrá frá Andalúsíu en Arsenal tapaði síðasta leik sínum gegn Lens.

Stöð 2 Sport 4

  • Klukkan 18.50 er leikur Union Berlín og Napoli á dagskrá. Heimamenn eru án sigurs í keppninni.

Stöð 2 Sport 5

  • Klukkan 18.50 er leikur Lens og PSV á dagskrá.

Vodafone Sport

  • Klukkan 16.45 hefst leikur Inter og Salzburg í Mílanó.
  • Klukkan 18.50 mætast Manchester United og FC Kaupmannahöfn á Old Trafford. Bæði lið eru án sigurs en FCK nældi þó í stig í Tyrklandi. Athyglisvert verður að sjá hvort Orri Steinn Óskarsson fái tækifærið gegn Rauðu djöflunum.

Stöð 2 ESport

  • Klukkan 19.15 hefst útsending frá leikjum kvöldsins í Ljósleiðaradeildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×