Sport

Dagskráin í dag: Subway-deildin, úrvalsdeildin í pílukasti, EuroLeague og fleira

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Haukar taka á móti Keflavík í Subway-deild kvenna í kvöld.
Haukar taka á móti Keflavík í Subway-deild kvenna í kvöld. Vísir/Diego

Sportrásir Stöðvar 2 bjóða upp á átta beinar útsendingar úr hinum ýmsu íþróttum á þessum fína miðvikudegi þar sem allir ættu að geta fundir sér eitthvað við sitt hæfi.

Við hefjum daginn á NHL On The Fly á Vodafone Sport klukkan 09:05 áður en Crvena Zvezda Belgrade og AS Monaco eigast við í EuroLeague í körfubolta klukkan 17:55 á sömu rás.

Við færum okkur svo aftur yfir í íshokkí á Vodafone Sport klukkan 23:35 þegar Detroit tekur á móti Pittsburgh í NHL-deildinni.

Úrvalsdeildin í pílukasti heldur áfram á Stöð 2 Sport og hefst bein útsending klukkan 19:30. Tuttugu mínútum síðar hefst svo bein útsending frá viðureign Hauka og Keflavíkur í Subway-deild kvenna í körfubolta á Stöð 2 Sport 5 og að þeim leik loknum tekur Subway Körfuboltakvöld við keflinu þar sem farið verður yfir umferðina.

Þá verður Föruneyti Pingsins á sínum stað á Stöð 2 eSport klukkan 20:00 og BMW Ladies Championship á LPGA-mótaröðinni í golfi lokar deginum á Stöð 2 Sport 4 frá klukkan 03:30 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×