Viðskipti innlent

Erla Rún leiðir Rann­sókna­setur skapandi greina

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Erla Rún Guðmundsdóttir lærði bæði í Kaupmannahöfn og Mílanó.
Erla Rún Guðmundsdóttir lærði bæði í Kaupmannahöfn og Mílanó.

Erla Rún Guðmundsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Rannsóknaseturs skapandi greina (RSG). Setrið var sett á stofn í vor en meginmarkmið þess er efla rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólanum á Bifröst.

Erla Rún er með meistarapróf í stjórnun og fjármálum menningar og skapandi greina frá Bocconi háskólanum í Mílanó og Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Hún hefur undanfarin fjögur ár starfað sem sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands og haft þar veg og vanda að þróun menningarvísa og annarrar menningartölfræði.

Starf Erlu Rúnar felst í að móta rannsóknastefnu setursins með stjórn þess, sinna miðlun og samskiptum, kortleggja styrkumhverfi fyrir rannsóknir á þessu sviði, og koma á laggirnar ráðgjafahóp RSG.

„Það eru spennandi verkefni framundan. Með vaxandi meðvitund um mikilvægi og hlutverk skapandi greina eykst þörfin fyrir rannsóknir á þessu sviði. Ég hlakka til samvinnu við fjölbreyttan hóp rannsakenda og fulltrúa skapandi greina,“ segir Erla Rún.

Anna Hildur Hildibrandsdóttir fagstjóri skapandi greina við Háskólann á Bifröst og formaður stjórnar RSG fagnar ráðningunni og segir Erlu Rún rétta manneskju á réttum stað. 

„Erla Rún kemur eins og kölluð í þetta starf og mun leiða með okkur þróun á bæði akademískum og sérhæfðum þjónusturannsóknum. Hún hefur stýrt uppbyggingu á menningarvísum á Hagstofu Íslands og mun nú leiða það uppbyggingarstarf sem felst í að auka rannsóknavirkni á sviði menningar og skapandi greina á Íslandi. Starf hennar á Hagstofu Íslands undanfarin ár er ein af forsendum fyrir rannsóknum, samanburði og skilgreiningum á þessum vaxandi og kvika atvinnuvegi.“

Stofnaðilar setursins eru Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Akureyri, Listaháskóli Íslands, Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands. Háskólinn á Bifröst heldur utan um starfsemi setursins sem er fjármagnað með framlagi frá menningar- og viðskiptaráðuneyti og háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðuneyti. Rannsóknarstefna setursins verður byggð á skýrslunni Sköpunarkrafturinn - orkugjafi 21. aldar sem út kom í maí síðastliðinn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×