Erlent

Rúmlega áttahundruð látnir eftir jarðskjálfta í Marokkó

Jón Þór Stefánsson skrifar
Skjálftinn fannst víða um Marokkó en hann var 6,8 að stærð. Fólk í höfuðborginni Rabat hefur þurft að leita sér skjóls á götum úti vegna jarðskjálftans.
Skjálftinn fannst víða um Marokkó en hann var 6,8 að stærð. Fólk í höfuðborginni Rabat hefur þurft að leita sér skjóls á götum úti vegna jarðskjálftans. EPA

Rúmlega áttahundruð manns eru látnir, og meira en þrjúhundruð særðir eftir jarðskjálfta sem reið yfir í gærkvöldi í Marokkó.

Skjálftinn fannst víða um landið, líkt og í sögufrægu borginni Marrakesh, en hann var 6,8 að stærð.

Búist er víð því að tala látinna muni hækka og þá er greint frá því að fimmtíu þeirra slösuðu séu illa haldnir.

CNN greinir frá því að björgunarsveitir í Marokkó eigi erfitt með að björgunaraðgerðri, meðal annars vegna þess að vegir séu eyðilagðir og aðgengi því torfengið.

Jarðskjálftinn átti sér stað klukkan ellefu á staðartíma, eða tíu á íslenskum tíma, í gærkvöldi. Upptök skjálftans voru á rúmlega átján kílómetra dýpi.

Myndbönd sem sýna rústir falla á götur og bíla eru nú í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Fréttin hefur verið uppfærð með nýjum upplýsingum um tölu látinna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×