Innlent

„Engir múslimar hér í kvöld“ átti að vera grín

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, segist ekki hafa áhyggjur af hótunum sem honum bárust vegna málsins.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, segist ekki hafa áhyggjur af hótunum sem honum bárust vegna málsins. Vísir/Vilhelm

Hannes Hólm­steinn Gissurarson, prófessor emeritus við Há­skóla Ís­lands, segist ekki hafa hlaupið á sig vegna á­sakana sinna á hendur konu og tveimur dætrum hennar um að hafa ætlað að hnupla tösku hans í Leifs­stöð um helgina. Hann segir mynd úr matar­boði í gær­kvöldi sem hann birti á Face­book, þar sem Hannes sagði enga múslima vera við­stadda, hafa verið setta fram í gaman­semi.

Þetta segir Hannes í svörum til Vísis en Hannes óskaði eftir því að fá spurningar sendar skrif­lega. Að­fara­nótt laugar­dags skrifaði Hannes færslu á Face­book þar sem hann sakaði konu í „múslima­búning“ um að hafa reynt að ræna af sér tösku sinni í Leifs­stöð.

Vísir gerði í­trekaðar til­raunir til að ná tali af Hannesi vegna málsins á laugar­dag. Ung kona, starfs­maður í Leifs­stöð, sagði í við­tali við frétta­stofu um helgina að hún hefði orðið vitni að at­vikinu. Hannes hefði öskrað á tvær ungar stelpur sem hafi tekið tösku hans í mis­gripum og svo á móður þeirra þegar hana bar að garði.

Í svörum til Vísis nú segir Hannes að ekki hafi verið um stór­mál að ræða og hyggst hann ekki leita til lög­reglu vegna málsins.

„Mér finnst hins vegar leiðin­legt, hvernig blaða­kona á Vísi gabbaði ó­reynda unga stúlku, sem starfar á Leifs­stöð, til að gefa alls konar yfir­lýsingar, sem voru alls ekki við hæfi, að starfs­fólk gæfi. En ég óska stúlkunni alls góðs og er viss um, að hún læri fram­vegis að gæta betur orða sinna.“

Telur ekki að hann hafi hlaupið á sig

Um­ræðan á Face­book þræði Hannesar varð afar hörð og var Hannes sakaður um ras­isma og þá var honum einnig hótað líf­láti vegna málsins í umræðum við þráðinn. Hann segist ekki hafa vitað um neinar slíkar hótanir.

„Ég les satt að segja fæst af þessu og hef engar á­hyggjur af því. Ís­lendingar voru pappírs­víkingar að fornu og nú eru þeir orðnir net­víkingar, skrifa digur­barka­legar færslur. Enginn verður með orðum veginn. Mér sýnist nú raunar líka, að lög­reglan hafi nóg að gera við að sinna and­stæðingum hval­veiða.“

Hannes segist ekki telja að hann hafi hlaupið á sig í þessu máli. Taska hans hafi ekki verið svipuð á­sýndar og taska stelpnanna.

„Hefði taskan mín verið svipuð ein­hverri tösku þeirra, hefði fólkið strax séð, að það var með tvær töskur, en ekki eina. Þetta voru ekki inn­ritaðar töskur af færi­bandinu, sem menn geta auð­veld­lega villst á, heldur gerðist þetta í Frí­höfninni. Og þegar ég sagðist eiga töskuna, þrætti fólkið fyrst, en af­henti mér hana síðan.“

Eyddi myndinni af til­lits­semi

Hannes birti í gær­kvöldi mynd úr matar­boði á Face­book. 

„Engir múslimar hér í kvöld,“ skrifaði Hannes við myndina. Hann eyddi henni stuttu síðar en hún hefur síðan farið í dreifingu á sam­fé­lags­miðlum.

Skjáskot af færslu Hannesar frá því í gærkvöldi hefur gengið manna á milli á samfélagsmiðlum.

„Þetta átti nú að vera gaman­semi. En fólkið, sem var með mér, vildi auð­vitað og skiljan­lega ekki blandast inn í þetta mál, sem er komið langt fram úr sjálfu sér. Ég tók myndina úr birtingu af til­lits­semi við það,“ segir Hannes um myndina.

„Annars get ég sagt, að ég tel, að dæma eigi menn af verkum þeirra, en ekki af kyn­þætti þeirra, trúar­brögðum, stétt, kyni, kyn­hneigð, auði eða völdum. Það er rangt að al­hæfa um hópa, og auð­vitað eru jafn­margir góðir menn og miður góðir í röðum þess eins milljarðs múslima, sem byggja jarðar­kringluna, og í öðrum trúar­flokkum. Ég skal hins vegar játa, að ég er mjög and­vígur öfga­múslimum, sem grýta konur til bana og fleygja sam­kyn­hneigðum ein­stak­lingum út um glugga í há­hýsum.“


Tengdar fréttir

Segir Hannes hafa öskrað á börn og starfs­fólk

Ung kona sem varð vitni að því þegar Hannes Hólmsteinn Gissurason sakaði konu ásamt tveimur dætrum hennar um að hafa reynt að ræna töskunni sinni í Leifsstöð í gær, segist viss um að hann hefði ekki brugðist jafn harkalega við ef um Íslendinga hefði verið að ræða. Hún segir Hannes hafa verið í miklu uppnámi og öskrað á konuna, dætur hennar og starfsfólk flugstöðvarinnar. 

Sakar konu í „múslima­búning“ um að hafa rænt töskunni sinni

Facebookfærsla Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, þar sem hann sakar konu í „múslima­búning“ um að hafa reynt að ræna tösku sinni í Leifsstöð í gær, hefur vakið hörð viðbrögð. Sjónarvottur að atvikinu segir ungar dætur konunnar hafa tekið töskuna í misgripum en skilað henni um leið og upp komst um misskilninginn. 

Starfslok í háskólanum en ekki í lífinu

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálaheimspeki, var kvaddur með alþjóðlegri ráðstefnu í Háskóla Íslands í dag. Hannes varð sjötugur í febrúar síðastliðnum og sem opinber starfsmaður þarf hann að láta af störfum við þann aldur. Hann segir að ekki sé um að ræða starfslok í lífinu þó starfi hans í háskólanum sé lokið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×