Innlent

Golfvöllurinn á kafi og manni bjargað úr húsi í Sandgerði

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Ljóst er að Kirkjubólsvöllur í Sandgerði hefur orðið fyrir miklum skemmdum.
Ljóst er að Kirkjubólsvöllur í Sandgerði hefur orðið fyrir miklum skemmdum. vísir

Björgunarsveitir á Suðurnesjum komu manni til bjargar eftir að sjór flæddi yfir sjóvarnargarða í Sandgerði. Sjórinn umlukti hús hans en það er sömuleiðis allt á floti á golfvelli bæjarins.

Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar staðfestir að björgunarsveit hafi verið kölluð út í kvöld eftir að sjór gekk á land í Hvalnesi, suður af Sandgerði.

Umrætt hús.björgunarsveitin sigurvon

„Sjóvarnargarður brast og nú umlykur sjór að minnsta kosti eitt hús. Þegar þetta gerist var einn íbúi í húsinu sem þurfti að vaða sjó til að komast á brott. Það er verið að gera ráðstafanir og fá sandpoka til að setja fyrir dyraop og annað. Það virðist hafa flætt ansi mikið þarna.“

Dælubíll frá brunavörnum Suðurnesja var kallaður til til þess að dæla úr húsinu. 

„Það er mjög há sjávarstaða,“ segir Jón Þór. 

Allt á kafi

Hjónin Marta Eiríksdóttir og Friðrik Þór Friðriksson, sem eru búsett í Nátthaga í Suðurnesjabæ áttu leið hjá golfvellinum í kvöld.

„Okkur er litið út um gluggann og sjáum að varnargarðarnir eru brostnir. Það er þvílíkur kraftur í þessu. Við ákváðum að taka myndir til að vekja menn vegna þess að það er í raun ekkert eftir af þessum varnargarði. Það er allt á floti, bara eins og á kæmi hérna yfir,“ segir Marta í samtali við Vísi.

Hún segir að allt hafi verið komið á kaf eftir örfáar mínútur.

„Við vorum næstum lokuð inni, við gengum út til að taka myndir og svo flæddi allt um kring. Sjórinn er farinn að falla frá en það verður svakalegt að sjá tjónið á morgun. Þetta er mjög vinsæll og góður golfvöllur,“ segir hún. Tvær golfbrautir, fimmtánda og sextánda, hafa orðið fyrir miklu tjóni að sögn Friðriks. Golfvöllurinn er staðsettur við Nátthaga, milli Garðs og Sandgerðis.

Það var ekki aðeins í Sandgerði sem það flæddi yfir sjóvarnargarða. Við Ægissíðu í Reykjavík hefur sjór flætt yfir göngustíga.

Frá Ægissíðu í kvöld. vísir


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×