Lífið

Keppti fyrir hönd fjöl­fatlaðrar systur sinnar

Íris Hauksdóttir skrifar
Lilja Sif Pétursdóttir nýkjörin Ungfrú Ísland.
Lilja Sif Pétursdóttir nýkjörin Ungfrú Ísland. Vilhelm/Vísir

Lilja Sif Pétursdóttir sigraði keppnina Miss Universe Iceland fyrir skemmstu. Hún er elst í sex systkina hópi en ein af systrum hennar er fjölfötluð sem er ástæða þess að Lilja starfar í dag á hjúkrunarheimili. Í framtíðinni dreymir Lilju um að geta hjálpað þeim sem minna mega sín. 

Lilja Sif starfar á hjúkrunarheimilinu Eir en samhliða stundar hún sjúkraliðanám. Hún stefnir á að fara síðar í háskóla og læra þaðan hjúkrunarfræði. 

Lilja Sif segir undirbúninginn fyrir keppnina hafa verið stórskemmtilegur.Vilhelm/Vísir

„Ég var alltaf í ballett sem barn,“ segir Lilja og heldur áfram. „Ég var líka í fimleikum og fannst gaman að prófa nýjar íþróttir.“

Vissi að þetta væri upplifun sem mig langaði að gera

Spurð hvers vegna hún hafi ákveðið að taka þátt í keppninni nefnir Lilja systur sína. „Ég ólst upp með systur minni sem er fjölfötluð og það hefur haft mjög mikil áhrif á það hver ég er í dag. Hún er ástæðan afhverju mig langaði að taka þátt í keppninni og sömuleiðis ástæða þess að mig hefur alltaf langað að hjálpa fólki og vinna við umönnun fólks. 

Lilju Sif dreymir um að hjálpa fólki í framtíðinni.Vilhelm/Vísir
Hún hefur líka hjálpað mér að sjá það að maður þarf alls ekki að vera heilbrigður til þess að vera ánægður.

Ég ákvað að taka þátt í keppninni þegar ég sá það að keppnin væri um það að vera maður sjálfur, standa með sjálfum sér og sínum skoðunum. Þá vissi ég að þetta væri eitthvað sem að mig langaði að upplifa og gera.“

Fljót að finna rétta kjólinn

Þegar talið berst að undirbúningnum segir Lilja hann hafa verið stórskemmtilegan. 

Lilja Sif Pétursdóttir vissi strax að þátttaka í keppninni væri eitthvað sem hún þyrfti að prófa.Vilhelm/Vísir

„Allt ferlið í tengslum við keppnina hefur verið eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert og mun aldrei gleyma því. Það var svo geggjað að kynnast öllum stelpunum og fara á æfingar og læra eitthvað nýtt. En að sama skapi var þetta líka krefjandi. Ég fann alveg fyrir stressi á köflum en engu að síður frábær upplifun. 

Lilja Sif segir keppnina hafa verið erfiða en fyrst og fremst skemmtilega. Vilhelm/Vísir

Ég var til að mynda mjög fljót að finna rétta kjólinn fyrir kvöldið. Ég var búin að skoða kjóla í sirka tuttugu mínútur áður en ég sá þann sem ég valdi. Um leið og ég sá hann þá vissi ég að þetta væri kjóllinn minn.“

Leiðir neikvæðar raddir hjá sér

Lilja segir þó úrslitin hafa komið sér gríðarlega á óvart. „Mér fannst við allar eiga það skilið að vinna. Ég var alls ekki að búast við því að ég myndi hampa titlinum en ég gæti ekki verið ánægðari.“

Lilja Sif bjóst ekki við að vinna en segist ekki geta verið ánægðari með sigurinn.Vilhelm/Vísir

Hávær umræða spannst í kjölfar keppninnar vegna lokaspurninga sem þátttakendur stóðu frammi fyrir að svara á ensku. Sjálf segist Lilja ekki hafa orðið vör við neikvæða gagnrýni. 

„Ég hef fengið mjög mikla jákvæða athygli eftir keppnina og það er ótrúlegt að sjá hvað það eru margir þarna úti sem sýna stuðning. Vissulega koma einstaka neikvæðar athugasemdir fyrir en ég leiði þær alfarið hjá mér.

Fyrir mig er nóg að vita hvar ég stend og svo er auðvitað hitt, að allir hafa rétt á sínum skoðunum. 

Lilja Sif er sannarlega glæsilegur fulltrúi Íslands.Vilhelm/Vísir

Þetta voru mjög krefjandi spurningar en við áttum líka von á því. Á æfingunum voru lagðar sambærilegar spurningar fyrir okkur svo við vissum við hverju við máttum búast.“

Engin útlitspressa

Lilja segist hafa fyrst og fremst verið spennt fyrir kvöldinu þó örlítill kvíði hafi líka látið á sér kræla. 

„Mér fannst svo gaman að geta sýnt allt sem við vorum búnar að æfa yfir sumarið. Ég undirbjó mig aðallega með því að borða vel og drekka vel fyrir kvöldið.“

Lilja Sif undirbjó sig fyrir stóra kvöldið með góðri næringu.Vilhelm/Vísir

Spurð hvort hún hugsi mikið um matarræðið segir Lilja svo ekki vera. „Ég borða allt sem mig langar í, þegar mig langar í það og hef ekki fundið neina útlitspressu í gegnum þetta ferli.“

Spennandi tímar framundan

En hvað tekur nú við?

„Nú er það heilt ár af skemmtilegri reynslu og stórum verkefnum sem ég get ekki beðið eftir að takast á við. Fyrsta ferðalagið er núna í september þar sem við Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmdarstýra keppninnar ferðumst um Bandaríkjunum. 

Framundan hjá Lilju Sif eru spennandi ferðalög.Vilhelm/Vísir

Miss Universe, aðalkeppnin fer svo fram í El Salvador í nóvember. Framtíðardraumurinn er að verða hjúkrunarfræðingur og vinna við að hjálpa fólki. Eins langar mig að starfa með fötluðum einstaklingum í framtíðinni, það væri draumurinn.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×