Innlent

Bjarni Bene­dikts­son, orku­skiptin og kröfur verka­lýðsins

Árni Sæberg skrifar
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju.
Sprengisandur hefst klukkan 10. Kristján Kristjánsson stýrir þættinum að venju.

Í dag verður Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra, aðalgestur Sprengisands. Hann mætir klukkan 11.

Aðrir gestir verða meðal annars Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets. Ný raforkuspá fyrirtækisins sýnir að orkuskiptin ganga miklum mun hægar en áætlanir gera ráð fyrir.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, ætlar líka að mæta og boða erindi verkalýðshreyfingarinnar fyrir haustið, þeirrar hreyfingar sem búið er að benda á og segja að stilla kröfum sínum í hóf.

Svo munu þau bregðast við boðskap fjármálaráðherrans um aðhald og aðgerðir gegn verðbólgu, þau Björn Leví Gunnarsson og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×