Innlent

Hafa komið öllum út úr húsinu sem vitað var um

Oddur Ævar Gunnarsson og Kristinn Haukur Guðnason skrifa
Gríðarlegan reyk liggur upp frá svæðinu þegar rúmur klukkutími er síðan að slökkvistörf hófust.
Gríðarlegan reyk liggur upp frá svæðinu þegar rúmur klukkutími er síðan að slökkvistörf hófust. Vísir/Bjarki

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út rétt fyrir klukkan eitt í dag vegna eldsvoða í iðnaðarhúsi á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði. Slökkvilið hefur komið öllum út sem vitað var að voru í húsinu. Ekki er ljóst hvort einhverjir séu enn þar.

Gríðarlegan reyk leggur upp af svæðinu og hafa slökkvistörf staðið yfir í rúma klukkustund. Íbúar eru beðnir um að loka gluggum. Slökkvilið segir mikinn eldsmat í húsinu og slökkvistörf munu taka tíma.

Töluverðan reyk lagði í upphafi frá brunanum og liggur reyndar enn, tæpum tveimur tímum eftir að hann hófst. Hefur fréttastofu borist myndir og myndbönd frá íbúum vegna þessa. Hann er enn mikill í næsta nágrenni og leggur yfir íbúablokkir skammt frá.

Að sögn Guðjóns Ingasonar, aðstoðarvarðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, er eldsvoðinn í húsnæði við Hvaleyrarbraut 22. Bílum hefur meðal annars verið bjargað úr húsinu, líkt og má sjá á myndum neðar í fréttinni.

Klippa: Svipmyndir frá slökkvistarfi

Tekur töluverðan tíma

Um er að ræða timburhús með klæðningu og bárujárnsþaki sem hýsir iðnaðarstarfsemi. Guðjón segir að tilkynning um brunann hafi komið frá sjónarvotti í næsta húsi.

Jóhann Viggó Jónsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að slökkvilið sé búið að koma öllum út úr húsinu sem vitað var um. Þó sé ekki hægt að fullyrða að enginn hafi verið eftir inni í húsinu á þessum tímapunkti.

Hann segist ekki hafa upplýsingar um það hve margir voru í húsinu. Jóhann segir ljóst að slökkvistörf muni taka töluverðan tíma. Húsið sé stórt, þar séu allskonar geymslur, sem fullar séu af allskonar dóti. Eins og fram hefur komið var bílum komið þaðan út fyrr í dag.

Áður hafði slökkvilið veitt fréttastofu þær upplýsingar að ekki væri ljóst hvort einhver hefði verið í húsinu. Útlit er fyrir að búið sé í húsinu sem skilgreint er sem iðnaðarhúsnæði.

Klippa: Mikill reykur frá eldsvoða í Hafnarfirði

Reyk leggur yfir nágrennið og sést úr mikilli fjarlægð

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að viðbragsaðilar kljáist nú við eld í húsnæði við Hvaleyrarbraut 22. 

Segir þar að reyk leggi frá húsinu. Er fólki í nágrenninu bent á að loka gluggum. Fréttastofa er á staðnum og er enn gríðarlegur reykur á svæðinu, rúmri klukkustund eftir að slökkvistörf hófust.

Gríðarlegan reyk leggur upp af svæðinu og yfir íbúablokkir í nágrenninu. Vísir/Helena

Mikinn reyk liggur yfir íbúablokkir í nágrenninu. Reykurinn var í upphafi svartur en varð svo ljósari að lit en er að dökkna aftur þegar klukkan er að ganga þrjú.

Reykurinn sést úr mikilli fjarlægð frá húsinu. Fréttastofu hefur meðal annars fengið myndir af Kársnesi í Kópavogi, þar sem sést vel í reykinn frá Hvaleyrarbraut.

Fólk er einnig beðið um að halda sig fjarri Hvaleyrarbraut og nágrenni til að gefa slökkviliði og lögreglu vinnufrið á vettvangi og til að tryggja aðkomu viðbragsaðila til og frá staðnum, að því er segir í tilkynningunni. 

Fréttastofu barst mynd af reyknum sem tekin var af Kársnesi á fjórða tímanum í dag. Aðsend/Pétur Bjarki

Þá virðist slökkvilið nú vinna að því að bjarga bílum sem geymdir voru í húsnæðinu. Auk þess virðast hjólbarðar  hafa verið geymdir í húsinu. 

Svo virðist vera sem bílar og hjólbarðar hafi verið geymdir á neðri hæð hússins.Vísir
Reykurinn sést enn úr gríðarlegri fjarlægð. Vísir/Kristín
Gríðarlegan, svartan reyk leggur upp frá húsnæðinu. Vísir/Kristín
Töluverður fjöldi fólks fylgist með slökkviliði að störfum. Vísir/Kristín



Um er að ræða eldsvoða í iðnaðarhúsnæði á Hvaleyrarbraut.
Mikill viðbúnaður er á staðnum. Vísir/Helena
Eins og sjá má náði reykurinn langt upp í loft.
Vel sást í reykinn frá norðurbæ Hafnarfjarðar.
Fréttastofu hefur borist myndir af reyk frá svæðinu.



Fréttin verður upp­færð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×