Íslenski boltinn

Botn­liðið fær liðs­styrk

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Nýjasti leikmaður Selfyssinga.
Nýjasti leikmaður Selfyssinga. UMF Selfoss

Selfoss hefur samið við Abby Burdette um að leika með liðinu út tímabilið í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Selfoss situr sem stendur á botni deildarinnar með aðeins sjö stig, fimm frá öruggu sæti.

Frá þessu var greint á samfélagsmiðlum félagsins. Þar segir að hin 23 ára Abby komi til liðsins frá  Tennesse-háskóla í Bandaríkjunum. 

„Við erum að vonast eftir því að Abbey geti hjálpað okkur að binda saman miðjuna og gefið okkur aukin þunga í sóknina,“ segir þjálfari liðsins, Björn Sigurbjörnsson.

Næsti leikur Selfoss er þann 29. júlí næstkomandi þegar Keflavík heimsækir JÁVERK-völlinn í sannkölluðum sex stiga slag. Keflavík er sem stendur í 8. sæti, einu stigi fyrir ofan fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×