Innlent

Segir Hraunssels-Vatnsfell með aðgengilegasta útsýnið

Kristján Már Unnarsson skrifar
Jón Haukur Steingrímsson er jarðverkfræðingur hjá Eflu.
Jón Haukur Steingrímsson er jarðverkfræðingur hjá Eflu. Ívar Fannar Arnarsson

Almannarvarnir hófu strax í gærkvöldi að stika leið til að beina ferðafólki með sem öruggustum hætti að gosstöðvunum. Formaður Landsbjargar segir að illa hafi gengið á fá björgunarsveitafólk til starfa úr sumarfríi.

Eldstöðin við fjallið Litla-Hrút er þrjá kílómetra suðvestan Keilis. Þótt loftlínan frá miðju Reykjavíkursvæðisins sé aðeins þrjátíu kílómetrar telst það meiriháttar mál að komast þaðan landleiðina á gosstaðinn.

Eldstöðin er við rætur fjallsins Litlahrúts. Fjær sést Keilir.Björn Steinbekk

Við Suðurstrandarveg skammt austan Ísólfsskála er búið að merkja gönguleið eftir vegslóða frá bílastæði í Leirdal að Hraunssels-Vatnsfelli. Þar settu almannavarnir upp lokunarpóst síðdegis í gær, um þrjá kílómetra frá gígunum, og bílar björgunarsveita streymdu að. Fyrsta verkefnið var að beina fólki frá því að ganga inn í reykjarmökkinn.

Frá Reykjavík tekur rétt um eða innan við klukkustund að aka að upphafsstað gönguleiðar austan Ísólfsskála, hvort sem farið er um Grindavík eða Krýsuvíkurleið um Kleifarvatn.Grafík/Rúnar Vilberg Hjaltason

Otti Rafn Sigmarsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sagði mjög erfitt að fá björgunarsveitarfólk til að standa vaktina vegna sumarleyfa.

„Þetta er besti tíminn og versti tíminn. Veðurfarið er fínt og þá er gott að koma og heimsækja gosstöðvarnar en okkar fólk er útivistarfólk upp til hópa og er bara í sumarfríi og annars staðar en hér,“ sagði Otti Rafn.

Gönguleiðin frá bílastæði að gosstöðvum er um tíu kílómetra löng.Grafík/Rúnar Vilberg Hjaltason

Hann hvatti stjórnvöld til að leggja sitt fram strax:

„Við enduðum síðasta eldgos á því að hingað voru komnir landverðir og lögregluþjónar og sjúkraflutningamenn og við hefðum viljað sjá þetta fólk bara hér frá fyrsta degi. En við vitum ekki hvenær við eigum von á þeim.“

Otti Rafn Sigmarsson, formaður Slysavarnafélagsins LandsbjargarÍvar Fannar Arnarsson

Bæði dómsmálaráðherra og umhverfisráðherra lýstu því yfir í dag að allt yrði gert til að bregðast við ástandinu. Gönguleiðin er alls um tuttugu kílómetra löng fram og ungt göngufólk sem við hittum sagðist hafa verið þrjá og hálfan tíma að komast á staðinn og átti svo eftir að fara til baka.

Og strax í gærkvöldi var hafist handa við að stika leið síðustu kílómetrana, samkvæmt leiðsögn Jóns Hauks Steingrímssonar, jarðverkfræðings hjá Eflu.

Séð til Hraunssels-Vatnsfells. Þar hafa björgunarsveitir komið sér upp vísi að bækistöð.Ívar Fannar Arnarsson

„Aðgengilegasti staðurinn, eins og staðan er núna er hérna utan í Hraunssels-Vatnsfelli, sem er hérna bara beint fyrir aftan okkur. Eins og gosið er að hegða sér núna er strókurinn að standa hérna niður eftir og miklir gróðureldar. Þetta er svona staður sem er utan skilgreinds hættusvæðis, tiltölulega öruggur og býður upp á gott útsýni. Þetta er svo sem enginn Gónhóll en eins gott og það getur orðið,“ sagði Jón Haukur.

Nánar í frétt Stöðvar 2:

Útsýnið af efsta hluta Hraunssels-Vatnsfells mátti sjá í beinni útsendingu Stöðvar 2 fyrsta gosdaginn:

Útsýnið neðarlega úr norðurhlíðum Hraunssels-Vatnsfells mátti sjá í beinni útsendingu Stöðvar 2 annan gosdaginn:


Tengdar fréttir

Fólk hætti sér með ung börn í gegnum reykjarmökkinn

Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að eldgosinu á Reykjanesi í dag í ágætu veðri en mjög erfiðum aðstæðum vegna mikils reyks frá gróðureldum. Dæmi eru um að foreldrar gangi með ung börn á bakinu í gegnum reykmökkinn til að komast að gosinu.

Gjald­skylda hafin á bíla­stæðunum við gossvæðið

Búið er að hefja gjaldskyldu á bílastæðunum við gönguleiðina að eldgosinu. Kostnaður við stæði er frá þúsund og upp í fjögur þúsund krónur. Ef gjald er ekki greitt leggst þrjú þúsund og fimmhundruð króna álagning á gjaldið.

Landverðir verði að standa vaktina við eldgosið

Dómsmálaráðherra mun kalla eftir því að landverðir standi vaktina á gosstöðvunum við Litla-Hrút til að létta undir með björgunarsveitum. Ekki sé annað hægt en að stjórnvöld stígi inn í verkefnið með einhverjum hætti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×