Lífið

Dóttirin fæddist á af­mælis­degi bróður síns: „Bestu af­mælis­gjafirnar mínar“

Íris Hauksdóttir skrifar
Leik og söngkonan Katrín Halldóra með nýfædda dóttur sína í fanginu.
Leik og söngkonan Katrín Halldóra með nýfædda dóttur sína í fanginu. aðsend

Leik og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Hallgrímur Jón Hallgrímsson, trommuleikari Sólstafa eignuðust sitt annað barn þann 5. júlí síðastliðinn, á afmælisdegi sonar þeirra. Sjálf á Katrín afmæli 4. júlí og segir börnin tvö vera sínar bestu afmælisgjafir.

Í færslu sinni á Facebook skrifar Katrín Halldóra: 

Hún er mætt! Fullkomin, 14 merkur og 50 cm. Hún ákvað að drífa sig í heiminn 10 dögum fyrir tímann til þess að ná að eiga sama afmælisdag og Stígur stóri bróðir sem varð 3 ára þann dag! 

Stígur, þriggja ára er stoltur stóri bróðir.aðsend

Núna eigum við Hallgrímur tvö börn sem eru fædd 5. Júlí! Bestu afmælisgjafirnar mínar, ég er 4. júlí. Og fleiri ótrúlegar tilviljanir, en hún Ragnheiður Reynis yndislega ljósmóðirin sem tók á móti Stíg var óvænt á vakt og tók líka á móti þessari dömu - í sömu fæðingarstofu nr. 9 - þann 5. júlí nákvæmlega þremur árum seinna! Ég veit ekki hvað er í gangi en ég held að þetta verði seint toppað.

Litla snótin dafnar vel hér í fangi móður sinnar.aðsend

Katrín Halldóra glæddi Ellý Vilhjálmsdóttur eftirminnilega lífi í söngleiknum Ellý sem sýndur var 220 sinnum í Borgarleikhúsinu en síðan þá hefur hún fengist við ýmis verkefni innan leikhúsanna. 

Hallgrímur er sannarlega stoltur faðir með þriðja barnið sitt.aðsend

Samtals á parið þrjú börn en fyrir átti Hallgrímur son úr fyrra sambandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×