Innlent

Maður sem er sagður hafa brotið á stúlku vinnur enn í kringum börn

Árni Sæberg skrifar
Maðurinn er sagður hafa brotið gegn stúlkunni í sumarbúðunum í Reykjadal síðasta sumar.
Maðurinn er sagður hafa brotið gegn stúlkunni í sumarbúðunum í Reykjadal síðasta sumar. Reykjadalur

Þroskaskertur maður, sem er sagður hafa brotið kynferðislega á níu ára stúlku með fötlun í sumarbúðunum í Reykjadal í fyrrasumar, vinnur í dag í reiðskóla þar sem börn sækja námskeið.

Í samtali við Vísi segir Halla Ingibjörg Leonhardsdóttir, móðir stúlkunnar, að vinkona hennar, sem hefur fylgst með máli dóttur hennar frá upphafi, hafi sett sig í samband við hana í dag og sagst hafa séð manninn við reiðskóla á höfuðborgarsvæðinu í gær. 

Vinkonan hafi sent henni mynd af manninum til þess að sannreyna að um sama mann væri að ræða, sem hún hafi því miður getað staðfest. „Svo bara fer boltinn að rúlla“ segir Halla.

Halla sagði frá málinu á Facebook í kvöld, þar sem færslan hefur vakið hörð viðbrögð.

Forsvarsmenn komu af fjöllum

Vinkonan hafi þá sett sig í samband við forsvarsmenn reiðskólans í morgun til þess að grennslast fyrir um málið og spyrja hvort maðurinn væri starfsmaður skólans, sem hann hafi svo sannarlega verið.

„Þá koma þau alveg af fjöllum og höfðu ekki hugmynd um þetta. Hann er sem sagt búinn að vinna þarna síðustu þrjú sumur. Móðir hans hafði hvorki látið vita af því sem gerðist síðasta sumar, né að málið væri á ákærusviði.

Móðirin þekkt fréttakona á RÚV

Í færslu sinni á Facebook segir Halla að móðir mannsins sé virt fréttakona á RÚV og að forsvarsmenn reiðskólans hafi ráðið manninn af greiðasemi við hana.

„Þetta er rosalegt högg og við erum rosalega reið út í þessa móður, fyrir að halda það að sonur hennar sé eitthvað fremri en aðrir. Og mér finnst þetta frekja í henni og við erum fyrst og fremst rosalega reið. Það var loksins komið hrúður yfir sárið, sem þetta brot olli okkur síðasta sumar, en það er allt opið núna. Það er eins og hnífnum sé snúið í sárinu.“

„Það verða læti í okkur“

Halla segir að hún og eiginmaður hennar, Einar Örn Jónsson, muni ekki láta málið kyrrt liggja. 

„Það verða læti í okkur þangað til að það verður búið að tryggja það að þessi maður komi ekki nálægt börnum aftur. Það er bara þannig. Ég mun setja mig í samband við reiðskólann í fyrramálið til þess að ganga úr skugga um að þessi maður verði ekki þarna lengur. Ef það verður ekki farið eftir því þá hef ég bara samband við fjölmiðla aftur,“ segir hún og bætir við að dóttir hennar hafi sótt reiðnámskeið.

„Ég bara þakka guði fyrir að hún fór ekki á þetta námskeið.“

Skýrsla sýnir að pottur var víða

Í byrjun sumars kom út skýrsla sem varpar ljósi á atburðarrásina síðasta sumar þegar meint kynferðisbrot átti sér stað í sumarbúðum. Dóttir þeirra Höllu og Einars Arnar greindi frá því á heimferðardegi úr Reykjadal síðasta sumar að þroskaskertur starfsmaður sumarbúðanna hefði brotið á henni með því að snerta einkastaði hennar.

Einar Örn sagði í samtali við fréttastofu af því tilefni skýrslu um málið vera lið í því að ljúka málinu af hálfu fjölskyldunnar. Málið hafi tekið mikið á fjölskylduna.

„Hún fer bara mjög vel og ítarlega yfir málið og sýnir svart á hvítu hvað fór úrskeiðis hjá starfsmönnum Reykjadals og starfsmönnum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra,“ sagði hann.

Í skýrslunni er fjallað um að alvarlegur misbrestur hafi verið á viðbrögðum starfsmanna og stjórnenda sumarbúðanna þegar upp komst um atvikið. Viðbrögð hafi verið ámælisverð og ómarkviss.

Hér að neðan má sjá færslu Höllu í heild sinni:

Uppfært...

Ég fékk að vita það rétt í þessu að fíflið var við störf í dag milli kl. 13 og 16 og var þá innan um börn á reiðnámskeiði hjá Reiðskóla Reykjavíkur. Eigendurnir fengu fréttir af þessu máli milli kl. 11 og 12 í morgun. Blöðin eru komin í málið.

Í fréttum er þetta helst….

Í dag komumst við hjónin að því að fíflið sem braut á dóttur okkar síðasta sumar er í vinnu innan um börn og í svipuðum aðstæðum og hann var í Reykjadal síðasta sumar. Atvinnurekendur réðu hann af greiðasemi við móður hans sem er virt fréttakona á RÚV. Hún lét þá samt ekki vita af því að sonur hennar braut á níu ára gamalli stúlku sl. sumar og varð málið að lögreglumáli sem nú er lokið og komið til ákærusviðs.

Hvað finnst ykkur um þetta?.

Fréttin hefur verið uppfærð. 


Tengdar fréttir

Verk­ferlar í Reykja­dal hafi verið bættir strax í haust

Verfkerlar í Reykjadal, sumarbúðum fyrir fötluð börn, hafa verið uppfærðir og þeir lagfærðir, eftir að stúlka sem dvaldi þar síðasta sumar sagði þroskaskertan starfsmann hafa beitt hana kynferðisofbeldi. Forstöðumaður segir athugasemdir við viðbrögðum teknar alvarlega.

Ámælisverð viðbrögð eftir að þroska­skertur maður braut á barni

Samkvæmt nýrri skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) voru fyrstu viðbrögð starfsmanna í Reykjadal ámælisverð þegar þroskaskertur starfsmaður er sakaður um að hafa brotið á níu ára stúlku. Viðeigandi verkferla hafi skort með öllu og fyrstu viðbrögð talin ómarkviss.

Rannsaka kynferðisbrot gegn barni í Reykjadal

Lögregla hefur til rannsóknar meint kynferðisbrot í sumarbúðunum í Reykjadal í ágúst 2022. Foreldrar barnsins lýsa brotunum í samtali við Heimildina og þeim áhrifum sem þau hafa haft á fjölskylduna. Málið allt hafi verið helvíti frá upphafi til enda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×