Chrissie, Marion, Narfey, Alica og Elenora voru öll samþykkt sem kvenmannsnöfn, það síðastnefnda sem ritháttarafbrigði eiginnafnsins Elenóra. Aariah var hafnað sem kvenmannsnafni og fallist var á móðurkenninguna Rakelardóttir.
Tvo karlmannsnöfn voru samþykkt, það eru nöfnin Straumur og Jim. Það síðarnefnda tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Jims.
Þá voru nöfnin Sumar, Yggdrasil og Quin samþykkt og færð yfir á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.