Lífið

Ís­­lenskir Tinu-unn­endur syrgja rokk­­drottninguna

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Sigga Beinteins, Raggi „Turner“ og Bryndís Ásmundsdóttir eru stóraðdáendur rokkdrottningarinnar.
Sigga Beinteins, Raggi „Turner“ og Bryndís Ásmundsdóttir eru stóraðdáendur rokkdrottningarinnar. Vísir/Getty

Rokksöngkonan Tina Turner, sem lést í gær, á sér marga syrgjendur á Íslandi. „Það mun aldrei neinn koma í staðinn fyrir Tinu Turner,“ segir Ragnar Erling Hermannsson, stóraðdáandi hennar, sem iðulega er kallaður Raggi Turner.

Andlát söngkonunnar hefur valdið sorg á heimsvísu en jafnframt þakklæti fyrir framtak hennar til tónlistarinnar. Við náðum tali af nokkrum dyggustu unnendum hennar hérlendis.

Tónlist hennar hafi bjargað lífi hans

Ragnar Erling Hermannsson, oft nefndur Raggi Turner, er líklega einn mesti aðdáandi rokkstjörnunnar á landinu. Fyrir um átta árum fékk hann sér stærðarinnar húðflúr af andliti hennar á upphandlegg sinn.

Hann segir andlát Tinu Turner ekki hafa komið sér á óvart, hún hafi verið orðin mjög veik og átt skilið hvíld eftir annasama og erfiða ævi.

„Ég var mjög nálægt því kominn að fara bara upp í flugvél og fljúga til Zürich um daginn,“ segir Ragnar, sem átti sér þá ósk að hitta hana. Tina var búsett í Sviss síðustu þrjátíu ár ævi sinnar.

„Við fengum ekki að hittast í þessu lífi en ég fékk að sjá hana tvisvar á tónleikum,“ segir Ragnar. 

Hann segir tónlist Tinu hafa bjargað lífi sínu oftar en einu sinni.

„Hafði eitthvað meira en allir aðrir“

Sigga Beinteins, söngkona, lýsir Turner sem mikilli fyrirmynd sinni í tónlistinni. Sjálf sá Sigga Tinu þrisvar koma fram á tónleikum. 

„Hún heltók salinn frá upphafi til enda,“ segir hún um framkomu Tinu á tónleikunum.

Hún segir frá því þegar hún stóð svo nálægt sviðinu á tónleikum Tinu að henni fannst hún geta snert hana. „Maður gargaði bara eins og hálfviti.“

Sigga fer fögrum orðum um rokkstjörnuna. „Þessi kona var gjörsamlega mögnuð og ótrúleg.“ Hún segir Tinu hafa haft mikil áhrif á sig.

„Ég veit ekki hvort það komi einhvern tímann kona með þennan presens,“ segir Sigga. „Hún fellur í flokk með Elvis og Michael Jackson og Whitney Houston og svona fólki. Þetta er bara fólk sem hafði eitthvað meira en allir aðrir.“

Mikil baráttukona sem gafst aldrei upp

Söng- og leikkonan Bryndís Ásmundsdóttir hefur oft verið nefnd hin íslenska Tina Turner. Hún hefur í tvo áratugi komið fram á hinum ýmsu tónleikum og flutt lög söngkonunnar. 

Hún segir Tinu hafa veitt sér mikinn innblástur sem listamaður, sem og í lífinu og segir hana mikla baráttukonu og Valkyrju sem gafst aldrei upp.

„Hvað varðar Tinu þá hefur hún ekki bara hjálpað mér í gegnum tónlist heldur líka sem baráttumanneskja,“ segir Bryndís.

Hún vekur athygli á að þann 24. júní næstkomandi mun hún heiðra minningu rokkdrottningarinnar á Græna hattinum.


Tengdar fréttir

Sonur Tinu Turner fannst látinn

Elsti sonur bandarísku söngkonunnar Tinu Turner, Craig Raymond Turner, fannst látinn á heimili sínu í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×