Menning

Hristir upp í hefð­bundnum heimilis­stíl

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.
Hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Vísir/Vilhelm

„Mér finnst alltaf áhugavert að sjá hvað við setjum inn til okkar. Við flytjum inn í einhvern hvítan kassa og svo formum við hann og mótum og breytum öllu. Og mig langaði að koma með innleg inn á heimilið, mér fannst það mjög spennandi,“ segir hönnuðurinn og listakonan Hanna Dís Whitehead, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Hér má sjá viðtalið í heild sinni:

Hanna segir að hana hafi langað að hanna hluti sem tala til fólks.

„Hlutir sem eru ekki bara alveg hlutlausir í umhverfinu heldur eiga í samtali.“

Aðspurð hvort hún fari óhefðbundnar leiðir í húsgögnum svarar Hanna:

„Ég er aldrei að pæla í að það sem ég geri passi við eitthvað sem er, þá er eins og maður sé að hanna fyrir fortíðina. Kannski er það slæmt og kannski er betra að pæla í því hvað passar við. En ég er meira að hugsa um eitthvað sem gæti orðið. Hvernig hlutirnir gætu þróast.“

Þessi litríki lampi eftir Hönnu Dís er unninn úr ull sem Hanna fær í Hornafirði, þar sem hún er búsett.Instagram @studiohannawhitehead

Hún sker sig svo sannarlega úr með litaglöðum húsgögnum og einstökum efnivið en hún notast meðal annars við íslenska ull og strá.

„Mér finnst alltaf eitthvað svo spennandi þegar fólk fer sínar eigin leiðir. Allir sem fara sínar eigin leiðir í hvaða fagi sem er veita mér alltaf mikinn innblástur,“ segir Hanna Dís. 


Tengdar fréttir

„Svo verður maður kannski fyrir valtara og hvað gerirðu þá?“

„Ég hef rosalega gaman að því að vera á einhverjum mörkum. Með svona „questionable“ fagurfræði. Ég veit alveg að það finnst ekki öllum þetta flott og mér finnst það bara allt í lagi. Mér líður vel þar,“ segir listakonan og hönnuðurinn Hanna Dís Whitehead, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

„Mig langaði bara að leyfa geir­vörtunni að njóta sín“

„Ég var búin að upplifa það svolítið mikið hvað þetta var mikið tabú,“ segir ljósmyndarinn og listakonan Berglind Rögnvaldsdóttir, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind notast gjarnan við viðfangsefni á borð við kvenlíkamann og náttúruna og má segja að verk hennar séu femínísk og einkennist af kvennakrafti. Um þrítugt ákvað hún að skrá sig í ljósmyndanám í Osló og átti lífið í kjölfarið eftir að gjörbreytast í listræna og ævintýralega átt.

„Ég var stundum há­skælandi að mála þessi verk“

„Ég dett bara í einhverja hugleiðslu og mála án þess að hugsa of mikið. Ég leyfi því að gerast sem vill gerast,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason. Lífið tók óvænta og kærkomna stefnu hjá honum eftir að hann fékk tækifæri hjá galleríi í Chicago en síðan þá hefur hann verið að gera öfluga hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur Helgason er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Draumurinn rættist þegar Netflix hringdi

Ljósmyndarinn Benjamin Hardman hefur verið hugfanginn af Íslandi frá því hann kom hingað í fyrsta skipti árið 2013. Tveimur árum síðar flutti hann hingað og hefur síðan þá unnið hörðum höndum að því að láta draum sinn rætast um að vinna af fullum krafti við ljósmyndun og myndbandsgerð. Hann á að baki sér áhugaverða og einstaka sögu en Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.

Fékk ljós að láni hjá Salvador Dali

Myndlistarkonan Sigga Björg Sigurðardóttir er óhrædd við að nálgast óþægileg viðfangsefni í list sinni. Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir sýningunni Andardráttur á glugga á Ásmundarsafni þar sem verk Siggu Bjargar eiga í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar. Sigga Björg er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hún deilir sínum skapandi hugarheimi ásamt skemmtilegum sögum.

„Hann var á betra kaupi en þær við það að horfa á þær vinna“

Listakonan, vefarinn og brautryðjandinn Hildur Hákonardóttir hefur haft mikil áhrif á íslenska listheiminn með einstökum og pólitískum verkum sínum. Hún hefur með sanni átt viðburðaríkt líf og er þekkt fyrir að hafa alltaf verið nokkrum skrefum á undan. Verk hennar prýða nú Kjarvalsstaði á yfirlitssýningunni Rauður þráður sem Sigrún Hrólfsdóttir sýningarstýrir. Hildur Hákonardóttir er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×