Um­fjöllun, við­töl og myndir: Tinda­­stóll - Valur 69-82 | Ís­lands­­meistarar Vals tryggðu sér odda­­leik

Arnar Skúli Atlason skrifar
Úr leik kvöldsins.
Úr leik kvöldsins. Vísir/Davíð Már

Íslandsmeistarar Vals tryggðu sér oddaleik í úrslitaeinvígi Subway-deildar karla í körfubolta. Eftir frábæra byrjun Tindastóls náðu Valsarar vopnum sínum og unnu á endanum frábæran sigur. Það verður oddaleikur á Hlíðarenda.

Það var mikil spenna og eftirvænting þegar Tindastóll tók á móti Val í fjórða leik liðanna í úrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Valsmenn sitjandi Íslandsmeistarar en Tindastóll búið að vera að leita af titlinum í mörg ár og í fyrsta sinn í sögunni leiddu þér 2-1 í úrslitaseríunni.

Fyrsti leikhluti hófst og það var augljóst að það var mikið undir, liðin áttu erfitt með að tengja körfur og en svo kom sprettur frá Tindastóli og þeir rifu sig frá Valsmönnum leiddir áfram af Arnari og Taiwo Badmus, þeir röðuðu niður körfunum og það héldu þeim enginn bönd. 

Þeir skoruðu að vild og lítið að frétta sóknarlega hjá Val og ekkert að frétta hjá þeim varnarlega. Tindastólsmenn leiddu eftir fyrsta leikhluta með 15 stigum 38-23.

Badmus lét finna fyrir sér.Vísir/Davíð Már

Valur opnaði annan leikhluta og en þá fundu þeir lausn á því sem Tindastóll var að gera og þeir fóru að koma stigum á töfluna. Frank Aron Booker fann fjölina sína, sallaði hann niður stigum á meðan Tindastólsliðið kólnaði hratt. Á sama tíma gekk allt upp hjá Valsmönnum, Keyshawn Woods fékk tæknivillu um miðjan fjórðunginn og þar með sína þriðju villu og sat út fjórðunginn. 

Kristófer Acox fór að láta taka til sín og þegar seinasta sókn fjórðungsins leit dagsins ljós átti Kári Jónsson skot sem var stutt en Ozren tók sóknarfrákastið og lagði boltann ofan í og kom muninum í 5 stig um leið og klukkan rann út. 

Valsmenn skoruðu 20 stig í öðrum leikhluta en Tindastóll aðeins 10 stig.  Í hálfleik var staðan 48-43 heimamönnum í vil.

Ozren í kvöld.Vísir/Davíð Már

Þriðji leikhlutinn hófst og það var sama upp á teningum hjá liðunum, Tindastóll í vandræðum að skora á meðan Valur skoraði að vild. Svo kom skrýtnar mínútur í leiknum. 

Bæði lið voru ekki að skora og hverja slakari sóknina bar að garði en Valsmenn voru sterkari og komust yfir í leikhlutanum. Snögg fimm stig frá Val í lok fjórðungsins kom þeim í fjögurra stiga forystu og 62-58

Tindastóll hóf fjórða leikhluta og komust aftur yfir en og leikurinn var jafn en þá kom enn einn slaki kaflinn hjá Tindastóli, og Valur gekk á lagið og Kári Jónsson og Callum Lawson stigu upp. Voru það þeir sem kláruðu þennan leik og settu stóru skotin þegar á reyndi. 

Frank Aron og Kristófer voru svakalega öflugir líka fyrir Valsara. Leiknum lauk 82-69 fyrir Val og oddaleikur staðreynd, 

Tindastóll skoraði 38 stig í fyrsta leikhluta en 31 stig eftir það, gjörsamlega andlegt gjaldþrot og Pavel hefur verk að vinna fyrir næsta leik miðað við hvernig Tindastóll svaraði áhlaupi gestanna, Strákarnir hans Finns Freys voru hreint stórkostlegir í kvöld.

Kristófer Acox steig upp.Vísir/Davíð Már

Af hverju vann Valur?

Gjörsamlega frábærir eftir að hafa lent 17 stigum undir, betri á öllum sviðum í kvöld. Kári, Callum, Frank, Ozren og Pablo. Allir rosalega öflugir fyrir Valsliðið. Settu stóru skotin og voru gjörsamlega frábærir.

Kári steig líka upp.Vísir/Davíð Már

Hverjir stóðu upp úr?

Frank Aron Booker og Kári Jónsson, Frank Aron er að koma með alvöru framlag fyrir Valsara, hann var ekki hugsaður sem lykilmaður fyrir þá en sá er búinn að vera góður í þessari seríu. Kári Jónsson kláraði þennan leik, sá setti stóru skotin í lokinn. Arnar og Taiwo Badmus voru flottir hjá Tindastól Taiwo 28 stig og Arnar 19 stig.

Sigtryggur Arnar átti ágætan leik í liði Tindastóls.Vísir/Davíð Már

Hvað gekk illa?

Vörnin hjá Val í fyrsta leikhluta og sóknin hjá Tindastól eftir fyrsta leikhluta. Tindastóll fann engin svör við varnarleik Vals í kvöld en og skotnýtinginn eftir því. Lítið framlag á sóknarhelming frá Keyshawn, Geks, Drungilas og Ragnari. Ef Tindastóll ætlar að vinna þurfa fleiri en tveir að skila framlagi.

Hvað gerist næst?

Oddaleikurinn verður á uppstigningardag þann 18. maí í Origo-höllinni að Hlíðarenda klukkan 19.15. Þar kemur í ljós hvort Valur eða Tindastóll vinnur Íslandsmeistaratitilinn. Reiknað með flottasta Íþróttaviðburði á Íslandi, þar munu færri komast að en vilja.

Hefur aldrei verið fallegt hjá okkur en samstaðan, trúin og samheldnin er frábær

Finnur Freyr á hliðarlínunni í kvöld.Vísir/Davíð Már

„Við unnum leikinn. Þeir komu sterkir út, Taiwo Badmus og Sigtryggur Arnar voru með sýningu í 1. leikhluta. Voru frábærir. Gríðarlega stoltur af liðinu mínu, hjartanu og hausnum. Að halda haus á þessu augnabliki í 1. leikhluta, held að flest öll lið hefðu brotnað,“ sagði Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals eftir leik.

„Erum þrautseigir, búnir að lenda í helling, búnir að vera elta alla úrslitakeppnina. Þetta lið er búið að sýna ótrúlega þrautseigju. Kristallast í þessum leik í kvöld.“

„Ekki endilega besta körfuboltalið sem ég hef þjálfað en rosalega mikil samheldni og mér þykir rosalega vænt um þessa stráka.“

„Erum búnir að vinna þrjá titla á þessu tímabili, sem mér finnst ótrúlegt. Að spila leik 5 í úrslitunum eftir að vera undir í öllum seríunum er bara magnað. Þetta hefur aldrei verið fallegt hjá okkur, aldrei verið sérstaklega frábært en samstaðan, trúin og samheldnin er frábær. Hún á skilið að fá þennan oddaleik,“ sagði Finnur Freyr að endingu.

Myndir 

Úr leik kvöldsins.Vísir/Davíð Már
Pétur Rúnar, leikmaður Tindastóls.Vísir/Davíð Már
Badmus og Grettismenn.Vísir/Davíð Már
Stólarnir byrjuðu af miklum krafti.Vísir/Davíð Már
Keyshawn Woods keyrir að körfunni.Vísir/Davíð Már
Gylfi Þór Sigurðsson mætti á leik kvöldsins líkt og hann hefur gert alla seríuna.Vísir/Davíð Már
Færri komust að en vildu.Vísir/Davíð Már
Úr leik kvöldsins.Vísir/Davíð Már
Rúrik Gíslason mætti einnig á leik kvöldsins.Vísir/Davíð Már
Forseti Íslands - Guðni Th. Jóhannesson - lét sig ekki vanta.Vísir/Davíð Már
Mönnum var heitt í hamsi.Vísir/Davíð Már
Kristófer hefur nýtt vítaköstin betur.Vísir/Davíð Már
Pétur Rúnar ekki sáttur.Vísir/Davíð Már

Tengdar fréttir

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira