Fótbolti

Albert skoraði í tap­leik sem skipti engu | Enn tapar Rosen­borg

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Albert Guðmundsson skoraði í dag.
Albert Guðmundsson skoraði í dag. vísir/Getty

Genoa hefur þegar tryggt sér sæti í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, á næstu ári og því skipti tap liðsins í dag litlu sem engu máli.

Ítalía

Albert hóf toppslag Frosinone og Genoa á varamannabekknum. Genoa komst yfir áður en liðið lenti manni undir og fékk í kjölfarið á sig tvö mörk áður en fyrri hálfleik var lokið.

Heimamenn kláruðu dæmið með marki á 77. mínútu en Albert minnkaði muninn í uppbótatíma. Hans tíunda mark í deildinni. Leiknum lauk með 3-2 sigri Frosinone sem þýðir að þegar ein umferð er eftir er toppliðið með 77 stig en Genoa 70 stig. Bæði lið eru samt sem áður búin að tryggja sér sæti í Serie A á næstu leiktíð.

Hjörtur Hermannsson spilaði allan leikinn í liði Pisa þegar það gerði 1-1 jafntefli á útivelli gegn Brescia. Hjörtur fékk gult spjald á 49. mínútu. Pisa er í 9. sæti, stigi frá sæti í umspilinu um sæti í Serie A.

Noregur

Það gengur hvorki né rekur hjá Íslendingaliði Rosenbrog en liðið tapaði 3-2 fyrir Bödo/Glimt á útivelli. Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliði Rosenborg en virðist hafa meiðst í fyrri hálfleik og var tekinn af velli á 42. mínútu. Í hans stað kom Kristall Máni Ingason.

Kristall Máni jafnaði metin í 2-2 á 58. mínútu en heimamenn svöruðu skömmu síðar og fór það svo að Bödo/Glimt vann 3-2 sigur.

Patrik Sigurður Gunnarsson stóð vaktina í marki Viking þegar liðið kom til baka og vann 2-1 sigur á Sandefjord á útivelli. Viking er í 3. sæti með 11 stig eftir 6 leiki. Rosenborg er í 12. sæti með 6 stig.

Svíþjóð

Valgeir Lunddal Friðriksson spilaði allan leikinn sem hægri bakvörður þegar Häcken vann 6-1 sigur á Degerfors í sænsku úrvalsdeildinni.

Norrköping kom til baka gegn Varberg en ótrúlegt en satt var enginn Íslendingur á skotskónum. Arnór Ingvi Traustason spilaði allan leikinn, Ari Freyr Skúlason kom inn af bekknum þegar 18 mínútur lifðu leiks og Andri Lucas Guðjohnsen sat á bekknum. Arnór Sigurðsson var fjarri góðu gamni.

Häcken er í 2. sæti með 18 stig eftir 8 leiki, þremur stigum á eftir toppliði Malmö sem á leik til góða. Norrköping er í 3. sæti með 17 stig.

Belgía 

Í Belgísku B-deildinni kom Nökkvi Þeyr Þórisson Beerschot yfir gegn Lierse K. en gestirnir svöruðu með tveimur mörkum og unnu 2-1 sigur. Beerschot er í 3. sæti með 49 stig, 17 stigum á eftir toppliði RWDM og 16 stigum á eftir Beveren í 2. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×