Lífið

Serena opin­beraði að hún ætti von á öðru barni

Atli Ísleifsson skrifar
Alexis Ohanian og Serena Williams í Metropolitan-listasafninu í gær.
Alexis Ohanian og Serena Williams í Metropolitan-listasafninu í gær. AP

Bandaríska tennisgöðsögnin Serena Williams hefur opinberað að hún eigi von á sínu öðru barni.

Williams staðfesti þetta á góðgerðarsamkomunni Met Gala í New York í Bandaríkjunum í gær. Þar sagði hún við blaðamenn á rauða dreglinum að þau væru þarna „þrjú“ en hún mætti ásamt eiginmanni sínum, Alexis Ohanian.

Williams og Ohanian eignuðust sitt fyrsta barn árið 2017 þegar dóttir þeirra, Olympia, kom í heiminn.

Serena Williams er eitt allra stærsta nafnið í sögu tennisíþróttarinnar en hún vann 23 risatitla á ferli sínum.

Í viðtali við tímaritið Vogue á síðasta ári sagðist hún vilja einbeita sér að því að stækka fjölskyldu sína.

Met Gala er árleg samkoma í Metropolitan-listasafninu í New York þar sem fé er safnað fyrir Costume Institute. Á samkomunni í gær var verið að opna sýningu á safninu til heiðurs tískuhannaðarins Karl Lagerfeld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×