Sara Lind sett forstjóri Ríkiskaupa Kjartan Kjartansson skrifar 20. apríl 2023 08:11 Sara Lind Guðbergsdóttir er settur forstjóri Ríkiskaupa út ágúst. Vísir/Vilhelm Fjármála- og efnahagsráðherra setti Söru Lind Guðbergsdóttur sem forstjóra Ríkiskaupa tímabundið eftir að Björgvin Víkingsson lét af störfum um mánaðamótin. Staðan verður að líkindum auglýst á næstunni.
Björgvin réði sig sem innkaupastjóra og aðstoðarframkvæmdastjóra verslanakeðjunnar Bónuss í mars. Hann hætti sem forstjóri Ríkiskaupa um síðustu mánaðamót. Hann hafði gegnt starfinu frá 1. september 2020. Í hans stað setti Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Söru Lind sem forstjóra tímabundið til 31. ágúst. Sara Lind starfaði sem sérfræðingur í kjara- og mannauðssýslu ríkisins hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og sat í samninganefnd ríkisins í kjarasamningsviðræðum en var færð til Ríkiskaupa sumarið 2021. Þar tók hún við stöðu sviðsstjóra stjórnunar og umbóta á sama tíma og þrír aðrir nýir sviðsstjórar tóku til starfa. Henni var falið að stýra stefnumótun og áætlanagerð stofnunarinnar ásamt forstjóra. Hún var jafnframt gerð að staðgengli forstjóra. Á starfsmannalista á vefsíðu Ríkiskaupa kemur nú fram að Sara Lind sé settur forstjóri Ríkiskaupa út ágúst. Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis segir fjármálaráðuneytið að Sara Lind sé settur forstjóri frá 1. apríl til 31. ágúst. Gert sé ráð fyrir að staðan verði auglýst „innan tíðar“.
Vistaskipti Stjórnsýsla Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira