Lífið

Herra Hnetu­smjör klæðist 400 þúsund króna smekk­buxum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Herra Hnetusmjör hefur dýran smekk.
Herra Hnetusmjör hefur dýran smekk. Daníel Þór

Tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör birti mynd af sér á samfélagsmiðlum í tæplega 400 þúsund króna Bull denim smekkbuxum á dögunum.

Buxurnar eru frá tískurisanum Prada og kosta 2900 Bandaríkjadali á vef Prada. Það svarar til tæplega 400 þúsund króna á gengi dagsins í dag. Buxurnar má sjá hér.

Herra Hnetusmjör hefur bersýnilega dýran smekk á vörum líkt og hann vitnar í í textanum við myndina þar sem hann talar um lúxus bifreiðar og farmiða á Saga Class. 

Skiptút bílnum fyrir xc90 sem ég skipti út fyrir Teslu

Herra komið hingað með 6 á úlnliðnum nenni ekkað spá hver er bestur

Fuck around og gerist sjónvarpsstjarna því þau pæla ekkert í textum

Flug til Spánar fyrir fjölskylduna vi'rum öll á Saga hvað hélstu

Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson er meðal þeirra sem tjá sig við færslu rapparans og veltir fyrir sér hvort Herra Hnetusmjör búi ekki til eigin fatalínu og hreinlega opni fataverslun.

Herra Hnetusmjör hefur vakið athygli fyrir klæðnað sinn í gegnum tíðina. Í því samhengi kom í ljós að hann fékk greiddar 300 þúsund krónur fyrir að klæðast Olís-peysu í Garðpartý Bylgjunnar árið 2019.

 Þá klæddist hann slopp í beinni útsendingu í Idol á Stöð 2 í vetur en þar var hann á meðal dómara.


Tengdar fréttir

Herra Hnetu­smjör og Frið­rik Dór sam­einast í nýju lagi

Tveir af vinsælustu tónlistarmönnum landsins, Herra Hnetusmjör og Friðrik Dór, leiða saman hesta sína í laginu „Vinn við það“ sem kom út nú á miðnætti. Lagið gæti auðveldlega orðið einn af stórsmellum ársins.

300 þúsund króna peysa Herra Hnetusmjörs

Klárlega besta markaðsstönt ársins, segir Bjarni Ákason framkvæmdastjóri um frammistöðu rapparans Herra Hnetusmjörs í Garðpartýi Bylgjunnar á Menningarnótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×