Innlent

Fjaðrár­gljúfur á kafi í drullu og verður lokað

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Bílastæðið er á kafi í drullu.
Bílastæðið er á kafi í drullu. Umhverfisstofnun

Umhverfisstofnun mun loka Fjaðrárgljúfri í Skaftárhreppi tímabundið vegna bleytu og ástands svæðisins. Lokunin tekur gildi klukkan 9 á morgun, skírdag, og gildir í tvær vikur.

Stefnt er að því að endurskoða lokunina eftir þann tíma en hugsanlega verður það gert fyrr ef svæðið verður í stakk búið til að taka á móti gestum án þess að hætta sé á skemmdum.

Meðal þess sem er lokað eru göngustígur og bílastæði að gljúfrinu, sem er afar vinsæll ferðamannastaður. Gljúfrið myndaðist við lok síðasta jökulskeiðs, fyrir 9 þúsund árum, þegar jökulinn hopaði og afrennslisvatn lóns rann um gljúfrið.

Hætta er á skemmdum á væðinu vegna ágangs ferðamanna og bleytu.Umhverfisstofnun

Samkvæmt tilkynningu frá Umhverfisstofnun er lokunin gerð á grundvelli náttúruverndarlaga og að leitað hafi verið til hagsmunaaðila áður en hún var ákveðin.

Göngustígurinn og nærliggjandi umhverfi er samkvæmt stofnuninni mjög illa farinn vegna vorleysinganna og mikils fjölda ferðamanna. Rigningin mun aðeins aukast um páskana og hætta á frekari skemmdum verði svæðinu ekki hlíft.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×