Sakar nefndarmenn á Alþingi um að þiggja gjafir frá hælisleitendum Bjarki Sigurðsson skrifar 28. mars 2023 15:30 Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra spurði á Alþingi í dag hvort þingmenn hefðu þegið þakklætisvott fyrir það að hafa veitt ríkisborgararétt. Arnar Halldórsson Dómsmálaráðherra sakaði nefndarmenn allsherjar- og menntamálanefndar og aðra Alþingismenn um að þiggja þakklætisvott frá fólki sem þingið hefur veitt ríkisborgararétt. Nefndin hefur sakað ráðherrann um að hafa brotið lög með því að koma í veg fyrir að Útlendingastofnun afhendi gögn í tengslum við veitingu á ríkisborgararétt.
Mönnum var heitt í hamsi á þingi í dag þegar rætt var um fundarstjórn forseta. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa kallað eftir viðbrögðum frá forseta Alþingis í ljósi þess að dómsmálaráðherra hafi brotið lög og komið í veg fyrir að þingmenn Alþingis ynnu sín störf í tengslum við veitingu ríkisborgararéttar í janúar í fyrra. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, upplýsti að nefndinni hefði borist minnisblað frá skrifstofu Alþingis þess efnis að ákvörðun Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um að Útlendingastofnun afhenti ekki nefnd Alþingis umbeðin gögn bryti í bága við lög. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.Vísir/Vilhelm „Niðurstaðan er ótvíræð og myndi í öllum öðrum samfélögum sem kenna sig við lýðræði kalla á afleiðingar,“ sagði Þórunn í ræðu sinni. Aðrir þingmenn Samfylkingarinnar auk þingmanna Pírata, Viðreisnar og Flokks fólksins voru harðorðir í sínum ræðum. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, þurfti oftar en einu sinni að minna þingmenn á að gæta orða sinna. „Hæstvirtur dómsmálaráðherra hefur ekki bara brotið þingskapalög heldur hefur hann sagt þjóðinni ósatt. Hann hefur komið hingað upp í pontu og sagt þjóðinni ósatt um það hver það er sem fer með forræði á veitingu ríkisborgararéttar. Hann hefur skrifað um það greinar. Ég er hérna með fyrir framan mig grein úr Vísi frá því í janúar 2022 þar sem hann talar um að almenna fyrirkomulagið sé að stjórnvöld veiti ríkisborgararétt en að það hafi verið settur sá varnagli að Alþingi kæmi líka að þessu,“ sagði Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um málið. Málið varðar meðferð á umsóknum um ríkisborgararétt sem komst í hámæli í ársbyrjun í fyrra. Þá kallaði Allsherjar- og menntamálanefnd endurtekið endurtekið eftir gögnum frá Útlendingastofnun. Um var að ræða umsögn stofnunarinnar og ríkislögreglustjóra vegna um 170 umsókna um ríkisborgararétt til að geta tekið afstöðu til þeirra. Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hafnaði veitingu gagnanna og sagði fyrirkomulag í þessum málum í áraraðir hafa veitt þeim sem sækja um ríkisborgararétt til Alþingis forgang umfram þá sem sæki um til Útlendingastofnunar. Hann sem dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun færu að tilmælum Umboðsmanns Alþingis sem hefði gert athugasemdir við þetta. Spurði hvort þingmenn fengju þakklætisvott Dómsmálaráðherra sjálfur ræddi síðan málið eftir að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafði reynt að útskýra mál hans. Bjarni sagði það ekki satt að gögnin mættu ekki afhenda heldur væri það svo að þau væru ekki tilbúin. Honum var svarað þannig að Jón hafi bara víst sagt að gögnin ætti ekki að afhenda og vísuðu í orð ráðherrans á opnum fundi með Allsherjar- og menntamálanefnd árið 2022. Jón sagði þróunina í þessum málum hafa verið með þeim hætti að á undanförnum árum hafi þeim umsóknum, sem áður töldust undantekningar og kæmu á borð Alþingis, farið fjölgandi. Það mikið að hann taldi það hafa mikil áhrif á almenna afgreiðslu þessara mála hjá Útlendingastofnun. „Þegar sú staða var komin uppi þá treysti ég mér ekki til þess að biðja stofnunina um að ýta þessu fram fyrir í röðinni. Um það snýst þetta, það stóð aldrei til annað en að afgreiða málin, bara í þau röð sem þau berast stofnuninni,“ sagði Jón. Þá óskaði hann eftir því að skoðaðar yrðu tengingar einstaklinga á Alþingi, þá sérstaklega innan Allsherjar- og menntamálanefndar, við hælisleitendur. „Var mögulegt að einhverjir hefði komuð að borðinu áður með vinnu við að sinna þeim hælisleitendum sem voru að fá veitingu ríkisborgararéttar? Hafa mönnum borið einhver sérstakur þakklætisvottur fyrir að hafa veitt ríkisborgararétt? Þetta eru kannski atriði sem væri ástæða til þess að fá til skoðunar hjá nefndinni og fá svör við því hvort einhver orðrómur um slíkt hafi við rök að styðjast,“ sagði Jón. Atvinnurógur og dylgjur Óhætt er að segja að þetta hafi farið öfugt ofan í stjórnarandstöðumeðlimi. Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði Jón ekki geta lagst lægra en þetta. „Hvernig getur það verið að hæstvirtur forseti láti það viðgangast að hæstvirtur dómsmálaráðherra komi hér upp með atvinnuróg og dylgjur um háttvirta þingmenn sem sitja í allsherjar- og menntamálanefnd, endurtekur slúðrið og lygina eins langt og hún nær og eins lengi og hann getur í þeirri von um að kjósendur trúi því,“ segir Þórunn. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, minnti þingmenn eftir þetta á að þingmenn og ráðherrar ættu að gæta orða sinna í umræðu um einstaka menn og fara varlega í ummælum sínum í tengslum við mál þingsins.
Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Píratar Viðreisn Flokkur fólksins Hælisleitendur Flóttafólk á Íslandi Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Fleiri fréttir Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Sjá meira