Ísland í sæng með hryðjuverkamönnum Ástþór Magnússon skrifar 28. febrúar 2023 10:00 Öfgafullur stríðsáróður og skoðanakúgun af hálfu ráðamanna og fjölmiðla á Vesturlöndum er ein helsta hindrun friðsamlegrar lausnar í Úkraníu. Skautað er yfir aðdraganda stríðsins. Menn falla fyrir svipuðum lygum frá Bandaríkjunum og þeir gerðu þegar ráðist var á Írak með opinberum stuðningi Íslenskra stjórnvalda og líf milljóna einstaklinga lagt í rúst. Enn ríkir upplausn í Írak áratugum síðar. Bandarísk stjórnvöld hafa stimplað sig inn í alþjóðasamfélagið sem umfangsmesta hryðjuverkaklíka mannkynssögunnar. Þau hafa á undanförnum áratugum skilið eftir sig blóðuga slóð talið í tugum styrjalda og milljónum flóttamanna um allan heim. Grátlegt er að horfa uppá íslenskan forsætisráðherra sem hlaut kosningu undir merkjum friðar og umhverfisverndar fylkja liði með þeim sem láta byssurnar tala. Friðarsamningar stöðvaðir af stríðsæsingamönnum Fyrrum forsætisráðherra Ísrael, Naftali Bennett skýrði frá í sjónvarpsviðtali að vestrænir leiðtogar hafi stöðvað friðarumleitanir hans við Pútin og Zelensky á síðasta ári þegar hann taldi um helmingslíkur að hægt væri að ná samningum um að binda enda á stríðið. Stríðsæsingamaðurinn Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands gerðist senditíkin sem tók að sér að jarða samninginn með heimsókn til Kiev. Stuttu síðar voru framin fjöldamorð í Bucha Úkraníu sem gerðu friðarumleitanir mun erfiðari. Utanríkisráðherra Tyrklands segir NATO vilja að stríðið haldi áfram, ástandið í Úkraníu skipti ekki svo miklu máli, aðal atriðið sé að Rússland veikist. Er þetta einnig markmið Íslands? Í stað þess að fagna tillögum Kína um að hefja friðarviðræður, keppast leiðtogarnir við að skjóta niður 12 punktana sem settir voru fram í viðleitni að fá menn að samningaborðinu. Ætlum við að sprengja upp heimili fólks að því forspurðu? Er eitthvað sem bendir til þess að meirihluti almennings t.d. á Krímskaganum óski eftir frelsun með sprengjuárásum á heimili sín? Ætlar sú þjóð sem skartar elsta lýðræðisþingi heims að styðja slíkt ofbeldi? Væri ekki nær að efna til kosninga undir alþjóðlegu eftirliti og leyfa íbúum að taka eigin ákvarðanir um sína framtíð með lýðræðislegum hætti? Þurfum nýja hugmyndafræði Þegar ég kynnti hugmyndina “Virkjum Bessastaði,” sem byggist á því að Forseti Íslands gerist alþjóðlegur málsvari heimsfriðar, hélt ég í einfeldni minni að íslenska þjóðin hefði meiri skynsemi til að bera en við sjáum í dag hjá forsætis- og utanríkisráðherra. Í forsetaframboðum mínum, sem hófust árið 1996, hef ég ítrekað varað við því að við stefnum í þriðju heimsstyrjöldina verði ekki gripið í taumana með nýrri hugmyndafræði friðar. Enginn getur unnið þetta stríð á vígvellinum Eina endurvopnunin sem á þarf að halda í Úkraníu eftir 30 ára stigmögnun átaka er vitsmunalegs og siðferðilegs eðlis, hver sem í hlut á. Fyrir rúmu ári síðan sendi Friður 2000 forseta Úkraníu og Rússlands tilllögur að friðarsamkomulagi og biðluðu til íslenskra stjórnvalda að beita sér fyrir friðarsamningum. Viljum við fórna Íslandi í stundarbrjálæði og gera Ísland og Íslenskar flugvélar að lögmætum skotmörkum í brjálaðri styrjöld sem við nú styðjum með flutningum á drápstólum. Elon Musk birti nokkrum mánuðum síðar svipaðar tilllögur á Twitter sem raunhæfa lausn á deilunni. Hann uppskar óhróður frá upptjúnuðu stríðsæsingaliði í Úkraínu og forsetanum Zelensky sem var á álíka nótum og George W. Bush þegar hann var að undirbúa Íraksstríðið og smala í lið hinna viljugu þjóða með hótanahlöðnum fullyrðingum, að þær þjóðir sem ekki styddu árás vestrænna þjóða á Írak styddu hryðjuverkamennina. Sagan hefur síðan leitt í ljós að hinar viljugu þjóðir, þar á meðal Ísland, báru ábyrgð á drápum hundruð þúsunda almennra borgara í ólögmætu stríði sem réttlætt var með lygaþvælu. Þegar ég varaði við því ráðabruggi að senda íslenskar farþegarflugvélar með vopn og hermenn, og vakti athygli á þeirri staðreynd að innrás í Írak væri byggt á lygum og ólögmætt, var mér umsvifalaust varpað í fangelsi á Litla Hrauni. Nú í dag erum við aftur að taka þátt í stríði með beinum hætti og gagnrýnisraddir þaggaðar niður og skilgreindar sem “hatursorðræða.” Hryðjuverk gegn orkuinnviðum Evrópu Stærsta umhverfishryðjuverk mannkynssögunnar var framið s.l. september þegar Nordstream gasleiðslan var sprengd með þeim afleiðingum að hundruð milljóna rúmmetra af gasi streymdu út í andrúmsloftið. Þetta var ekki aðeins hryðjuverk gegn umhverfinu, einnig gegn orkuinnviðum Evrópu og í raun stríðsyfirlýsing NATO ríkja gegn Þýskum almenningi. Bandaríkjamenn voru yfirlýsingaglaðir fyrir og eftir hryðjuverkið og virðast fagna því að selja hálfvitum í ráðherrastólum Evrópu flöskugas á allt að fjórföldu verði sem flutt er með mengunarspúandi olíudrifnum skipum yfir Atlantshafið. Heimsfrægur rannsóknarblaðamaður staðhæfir að bandaríkin sjálf ásamt Noregi hafi staðið fyrir þessari árás á Evrópu eins og fram hefur komið í umræðu hjá öryggisráði S.Þ. Á fullri ferð í þriðju heimsstyrjöldina Ég reyndist sannspár um að við værum á leið í styrjöld við Rússland. Nú er siglt fullri ferð í þriðju heimsstyrjöldina sem sérfræðingar skjálfa yfir að muni enda með notkun kjarnorkuvopna. Einn ráðherra íslensku ríkisstjórnarinnar hefur tjáð mér að lítið sé talað um ástandið á ríkisstjórnarfundum þrátt fyrir að Ísland, með bandaríska herstöð, sé eitt augljósasta skotmarkið. Nýlega varð uppi fótur og fit út af flugvél Landhelgisgæslunnar sem ráðgert var að selja úr landi og talað um þjóðaröryggi. Hvernig á sú gamla flugvél að bjarga þjóðinni frá kjarnorkusprengjum? Ekkert mun bjarga okkur frá slíkum hörmungum nema ný hugmyndafræði friðar við allar þjóðir. Getur einhver komið vitinu fyrir þetta fólk? Samtökin Friður 2000 eru tilbúin til að virkja tengsl sín við helstu fræðimenn heims í friðarmálum til að aðstoða ráðamenn að finna raunhæfa lausn til varanlegs friðar og afvopnunar. Við vonum að einhverjir geti komið vitinu fyrir forystu Íslands að leita slíkra leiða áður en það er of seint. Hægt er að hafa samband á vefsíðunni www.peace2000.org Ástþór Magnússon Stofnandi Friðar 2000 Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ástþór Magnússon Mest lesið Skattaglufuflokkar hinna betur settu þykjast hafa uppgötvað alla hina Þórður Snær Júlíusson Skoðun Lánið löglega Breki Karlsson Skoðun Þetta er ekki gervigreind Sigríður Hagalín Björnsdóttir Skoðun Hafa Íslendingar efni á að eiga ekki pening? Jón Páll Haraldsson Skoðun Viljum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, eða fólk sem þjónar hagkerfinu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Séreignarsparnaðarleiðin fest í sessi Ingvar Þóroddsson Skoðun Íbúðalánasjóður fjármagnaði ekki íbúðalán bankanna! Hallur Magnússon Skoðun Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Annarlegar hvatir og óæskilegt fólk Gauti Kristmannsson Skoðun Segið það bara: Þetta var rangt – þá byrjar lækningin Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Lestin brunar, hraðar, hraðar Haukur Ásberg Hilmarsson skrifar Skoðun Segið það bara: Þetta var rangt – þá byrjar lækningin Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Loftslagsmál á tímamótum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Séreignarsparnaðarleiðin fest í sessi Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Hafa Íslendingar efni á að eiga ekki pening? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Grundvallaratriði að auka lóðaframboð Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Íbúðalánasjóður fjármagnaði ekki íbúðalán bankanna! Hallur Magnússon skrifar Skoðun Húsnæðisliðurinn í vísitölu neysluverðs Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Viljum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, eða fólk sem þjónar hagkerfinu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Skattaglufuflokkar hinna betur settu þykjast hafa uppgötvað alla hina Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þakklæti og árangur, uppbygging og samstarf Jóhanna Ýr Johannsdóttir skrifar Skoðun Hver vakir yfir þínum hagsmunum sem fasteignaeiganda? Ívar Halldórsson skrifar Skoðun Endurhæfing sem bjargar lífum – reynsla fólks hjá Hugarafli Auður Axelsdóttir,Grétar Björnsson skrifar Skoðun Hjúkrunarheimili í Þorlákshöfn – Látum verkin tala Karl Gauti Hjaltason skrifar Skoðun Lánið löglega Breki Karlsson skrifar Skoðun Annarlegar hvatir og óæskilegt fólk Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Frostaveturinn mikli Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Allir eru að gera það gott…. Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Þetta er ekki gervigreind Sigríður Hagalín Björnsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti börnum á forsendum þeirra Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldislaust ævikvöld Gestur Pálsson skrifar Skoðun Er það þjóðremba að vilja tala sama tungumál? Jasmina Vajzović skrifar Skoðun „Íslendingar elska fábjána og vona að þeir geti orðið ráðherrar“ Jakob Bragi Hannesson skrifar Skoðun Nærri 50 ára starf Jarðhitaskóla GRÓ hefur skilað miklum árangri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Óður til frábæra fólksins Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Djíbútí norðursins Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Þegar veikindi mæta vantrú Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Öll börn eiga að geta tekið þátt Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Krónan úthlutar ekki byggingalóðum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn krefst vísinda – ekki tilfinninga Liv Åse Skarstad skrifar Sjá meira
Viljum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, eða fólk sem þjónar hagkerfinu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, eða fólk sem þjónar hagkerfinu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar
Skoðun Skattaglufuflokkar hinna betur settu þykjast hafa uppgötvað alla hina Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Endurhæfing sem bjargar lífum – reynsla fólks hjá Hugarafli Auður Axelsdóttir,Grétar Björnsson skrifar
Skoðun „Íslendingar elska fábjána og vona að þeir geti orðið ráðherrar“ Jakob Bragi Hannesson skrifar
Skoðun Nærri 50 ára starf Jarðhitaskóla GRÓ hefur skilað miklum árangri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Viljum við hagkerfi sem þjónar fólki og náttúru, eða fólk sem þjónar hagkerfinu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun