Lífið

Glímdi tvisvar við fæðingarþunglyndi

Máni Snær Þorláksson skrifar
Kylie Jenner prýðir forsíðu ítölsku útgáfu Vanity Fair í mars.
Kylie Jenner prýðir forsíðu ítölsku útgáfu Vanity Fair í mars. Getty/MEGA

Athafnakonan og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner prýðir forsíðu ítölsku útgáfu Vanity Fair tímaritsins í mars. Í viðtalinu ræðir Kylie meðal annars um það að glíma við fæðingarþunglyndi.

Kylie á tvö börn með rapparanum Travis Scott, dótturina Stormi Webster og soninn Aire Webster. Í viðtalinu við Vanity Fair segist hún hafa gengið í gegnum fæðingarþunglyndi eftir fæðingar þeirra beggja. „Ég hef upplifað það tvisvar. Fyrsta skiptið var mjög erfitt, seinna skiptið var viðráðanlegra,“ segir hún.

Aðspurð að því hvernig hún myndi ráðleggja öðrum sem ganga í gegnum fæðingarþunglyndi segir Kylie að mikilvægt sé að ofhugsa hlutina ekki. Þá sé mikilvægt að upplifa allar tilfinningarnar til hins ýtrasta. „Vertu í augnablikinu, jafnvel þó svo að það sé sársaukafullt,“ segir hún.

„Ég veit að á þessum augnablikum er eins og þetta muni aldrei hætta, að líkaminn þinn verði aldrei eins og áður, að þú verðir aldrei eins og áður. Það er ekki satt, hormónarnir og tilfinningarnar á þessu stigi eru miklu, miklu öflugri og stærri en þú. Mín ráð eru að lifa í gegnum breytingarnar án þess að óttast afleiðingarnar.“

Kim í uppáhaldi

Í viðtalinu er einnig rætt um Kardashian fjölskylduna. Kylie er meðal annars spurð hver uppáhalds systir sín sé: „Það breytist með tímanum. Akkúrat núna er það Kim.“

Kim Kardashian hefur að sögn Kylie breyst mikið nýlega, það sé meðal annars ástæðan fyrir því að hún er í uppáhaldi. „Við erum mjög tengdar, hún er alltaf fyrsta systirin sem ég hringi í þegar mig vantar eitthvað. Við höfum verið að ganga í gegnum mikið af svipuðum hlutum að undanförnu.

Kylie segir svo að Kendall sé sú systir sem hún á minnst sameiginlegt með. „Þið vitið hvað er sagt samt? Andstæður laða að og það er þannig sem þetta virkar hjá okkur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×