Innlent

Heyrði öskrað „eldur, eldur“ og svo gaus mökkurinn upp

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ragnar Eldur Linduson, íbúi í Vatnagörðum.
Ragnar Eldur Linduson, íbúi í Vatnagörðum. Vísir/egill

Íbúi áfangaheimilis í Vatnagörðum 18, sem vaknaði við eldsvoða í húsnæðinu í morgun, er sleginn eftir atburði morgunsins. Hann kallar eftir úrbótum í málum fólks með fíknivanda - og telur of hátt að borga 140 þúsund krónur í leigu á litlu herbergi á áfangaheimilinu.

Ragnar Eldur Linduson var sofandi í herbergi sínu á áfangaheimili Betra lífs í Vatnagörðum í morgun þegar brunakerfi fór í gang. Hann kippti sér ekki upp við það, kerfið hafði ítrekað farið í gang dagana á undan.

„En svo tíu mínútum síðar, í þriðja sinn sem kerfið fer í gang, heyri ég einhvern öskra „eldur eldur“, hóstandi. Ég sprett á fætur á brókinni, opna dyrnar, og þá kemur svartur mökkur á móti mér. Ég sá ekki neitt, þannig að ég skellti hurðinni, dreif mig í föt. Setti á mig tóman bakpoka og rauk út,“ segir Ragnar. 

Skreið út sótsvartur

Þegar út var komið fylgdist hann ásamt öðrum íbúum með eldinum ágerast. Það hafi verið mikill léttir þegar honum varð ljóst að allir hefðu komist heilir út.

„Og við heyrum rúðuna springa hægra megin í húsinu. Og svo gossar risaeldur út úr herberginu. Við höfðum náttúrulega gríðarlegar áhyggjur af fólkinu því flestir voru sofandi þegar þetta gerðist fyrir níu. Og svo tuttugu mínútum eftir það sáum við strákinn sem var nýfluttur í herbergið vinstra megin, alveg úti í enda, hann skreið út um gluggann þar sem reykherbergið er. Hann var allur sótsvartur, með reyk í nefinu og allt.“

Ragnar segir flesta íbúana bíða eftir að komast í meðferð. Þeir séu því margir á slæmum stað og ástandið sé oft erfitt, eins og íbúar annars áfangaheimilis Betra lífs lýstu í fréttum í fyrra. Sjálfur hafi hann fengið morðhótanir frá sambýlingum.

„Það er engin eftirfylgni, engir fundir eða slíkt. Enginn skiptir sér af fólkinu. Einn íbúinn, í herberginu við hliðina á mér, hann fannst látinn. Og var þá búinn að vera látinn í nokkra daga.“

Á botni listans

Unnið er að því hörðum höndum að finna húsnæði fyrir íbúa Vatnagarða sem fyrst. Ragnar kallar eftir úrbótum í málum fólks með fíknivanda.

„Við erum á botninum á listanum. Þegar kemur að heilbrigðiskerfinu og annarri þjónustu. Þannig að já, það mætti gera betur.“

Hvað ertu að borga í leigu?

„Hún er nefnilega frekar há. Ég er að borga 140 þúsund í leigu fyrir herbergi sem er fimm til tíu fermetrar að stærð,“ segir Ragnar.


Tengdar fréttir

Ekki taldir alvarlega slasaðir eftir brunann

Fimm voru fluttir á sjúkrahús eftir bruna í Vatnagörðum í Reykjavík í morgun en meiðsli þeirra eru ekki talin alvarleg að sögn lögreglu. Slökkvistarf gekk vel en margir voru í húsnæðinu, sem hýsir meðal annars áfangaheimili. Lögregla rannsakar nú vettvanginn. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×