Bíó og sjónvarp

Svika­kvendið segir eigin sögu við matar­borðið í stofu­fangelsi

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Sorokin er í stofufangelsi í íbúð sinni í New York borg.
Sorokin er í stofufangelsi í íbúð sinni í New York borg. Getty/Mike Coppola/AD

Rússneska svikakvendið Anna Sorokin, öðru nafni Anna Delvey hefur nú landað sjónvarpsþáttasamning á meðan hún er í stofufangelsi.

Sorokin hyggst bjóða leikurum, tónlistarfólki, blaðamönnum og fleirum heim til sín í mat og ræða hin ýmsu málefni. Þá kemur fram að áform Sorokin um að endurbyggja eigin ímynd verði einnig rædd.

Þessu greinir Variety frá.

Nýju þættirnir munu heita „Delvey‘s Dinner Club.“ Þar fær Sorokin tækifæri til þess að segja eigin sögu.

Þá er haft eftir forstjóra framleiðslufyrirtækisins Butternut sem samdi við Sorokin að besti staðurinn til þess að kynnast einhverjum sé við matarborðið.

Þættirnir „munu varpa ljósi á konuna sem liggur að baki öllu því sem við höfum lesið um Önnu. Hún er að segja sína sögu með eigin orðum og við trúum því að hún muni ögra væntingum áhorfenda,“ segir forstjóri Butternut, Courtney White.

Greint hefur verið frá því að draumagestir Önnu í þáttunum væru rithöfundurinn Bret Easton Ellis, ritstjóri Vogue, Anna Wintour og milljarðamæringurinn, Elon Musk.

Sorokin var sleppt úr fangelsi og hún færð í stofufangelsi í lok árs 2022. Síðan þá hefur hún haldið því fram að hún eigi skilið að fá annað tækifæri. Sorokin var sakfelld fyrir það að svíkja um tvö hundruð þúsund Bandaríkjadali frá fjárfestum og vinum í New York borg í Bandaríkjunum.

Sögu Önnu kannast eflaust einhverjir við en Netflix þættir sem hétu „Inventing Anna“ komu út árið 2022 og voru byggðir á sögu Önnu. Þættirnir nutu mikilla vinsælda.

Í þáttunum er farið yfir svik Sorokin, sigra og fall en hún var búin að telja fjölmörgum í yfirstétt New York borgar að hún væri einkaerfingi sjóðs sem átti að innihalda tugi milljóna Bandaríkjadala.

Sorokin er sögð hafa notað fjárhæðina sem hún fékk frá Netflix fyrir réttinn á sögu sinni, til þess að greiða niður skuldir sínar og sektir í New York.


Tengdar fréttir

Loddaranum Önnu Sor­okin sleppt úr steininum

Önnu Sorokin, þýskri konu sem þóttist vera erfingi mikilla auðæfa og sótti um árabil veislur yfirstéttarfólks í New York, hefur verið sleppt úr fangelsi. Sorokin var árið 2019 dæmd í fangelsi fyrir umfangsmikinn stuld eftir að hafa svikið rúmlega 200 þúsund Bandaríkjadala, um 25 milljónir króna, úr út bönkum og lúxushótelum.

Anna Sor­okin úr „Inventing Anna“ laus úr fangelsi

Hinni rússnesku Önnu Sorokin, sem þekkt er fyrir að hafa svikið háar fjárhæðir frá fólki í New York í Bandaríkjunum, hefur verið sleppt úr fangelsi. Hún hefur verið flutt í stofufangelsi, verið gert að vera með ökklaband og meinað að vera á samfélagsmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×