Menning

Breska ríkis­út­varpið spyr ís­lenskt stjórn­mála­fólk spjörunum úr

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Útvarpsþáttur BBC, World Questions verður tekinn upp í Tjarnarbíói þann 7. febrúar næstkomandi. Myndin er samsett. 
Útvarpsþáttur BBC, World Questions verður tekinn upp í Tjarnarbíói þann 7. febrúar næstkomandi. Myndin er samsett.  Getty/Peter Macdiarmid, Vísir/Vilhelm

Breska ríkisútvarpið mun taka upp útvarpsþáttinn World Questions í Tjarnarbíói þann 7. febrúar næstkomandi. Um er að ræða einskonar málfund þar sem stjórnmálafólk er spurt að hinum ýmsu spurningum sem varpa ljósi á land og þjóð. 

Spurningarnar geta komið alls staðar að og er það Jonny Dymond, sérfræðingur BBC í bresku konungsfjölskyldunni, sem fer með þáttarstjórn. Breska ríkisútvarpið hefur framkvæmt eins viðburði um allan heim.

Hver sem er getur mætt og fylgst með en leikhússtjóri Tjarnarbíós, Sara Marti Guðmundsdóttir segir að búist sé við heljarinnar viðburði. Hann sé haldinn til þess að veita innsýn í pólitíska landslag landsins sem á við hverju sinni.

Boðið verði í fordrykk og veitingar fyrir þá sem mæta á svæðið.

„Það þarf svolítið að passa upp á allt, það verða verðir úti um allt hús. Það verður leitað á fólki áður en það kemur inn bara svona af því að þau hafa lent í allskonar uppátækjum þegar þau hafa gert þetta erlendis. Þetta verður svolítið stórt og við búumst alveg við fullu húsi,“ segir Sara.

Samkvæmt vef BBC þar sem upptökurnar eru aðgengilegar og heimasíðu British Council verða Íslendingar einfaldlega spurðir út í framtíð landsins.

Þórhildur Ólafsdóttir, fjölmiðlakona og íslenskur aðstandandi þáttarins segir enn verið að negla niður hvaða íslenska stjórnmálafólk verði fyrir valinu.

Búast megi við því að tekið verði á stærri málaflokkum eins og ferðamannaiðnaðinum, loftslagsbreytingum og stríðinu í Úkraínu ásamt öðru innlendu. Ætlunin sé að kynna landið og stöðu þess fyrir þeim sem það ekki þekkja.

Hægt er að skrá sig á viðburðinn í gegnum eyðublað frá British Council hér

Samkvæmt vef BBC verður upptakan af málfundinum aðgengileg hér þann 11. febrúar næstkomandi stuttu eftir að þátturinn kemur út. Þátturinn fer í loftið klukkan 19:06 á íslenskum tíma.

Aðra World Questions útvarpsþætti má hlusta á með því að smella hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×