Fótbolti

Manchester United valtaði yfir Liverpool

Hjörvar Ólafsson skrifar
María Þórisdóttir í leik með Manchester United. 
María Þórisdóttir í leik með Manchester United.  Vísir/Getty

María Þórisdóttir kom inná sem varamaður á 70. mínútu þegar lið hennar, Manchester United, sigraði Liverpool með sex mörkum gegn engu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta kvenna í dag. 

Lucia Garcia, Alessia Russo, Hayley Ladd, Martha Thomas og Rachel Williams voru á skotskónum fyrir Manchester United í leiknum en eitt markanna var svo sjálfsmarki. 

Manchester United situr ásamt Arsenal í öðru til þriðja sæti deildarinnar en fyrr í dag mættust Chelsea og Arsenal í toppslag. 

Þeim leik lyktaði með 1-1 jafntefli en Kim Little kom Arsenal yfir í þeim leik og Samantha Kerr jafnaði metin fyrir toppliðið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×