Innlent

Skipaður for­stjóri Sjúkra­trygginga án aug­lýsingar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður H. Helgason tekur við starfinu þann 1. febrúar.
Sigurður H. Helgason tekur við starfinu þann 1. febrúar. Stjórnarráðið

Sigurður Helgi Helgason, skrifstofustjóri skrifstofu stjórnunar og umbóta í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, hefur verið skipaður forstjóri Sjúkratryggingar. Þetta staðfestir Sigurður í samtali við Vísi og segist spenntur að taka við starfinu. Stofnunin heyrir undir heilbrigðisráðuneyti Willums Þórs Þórssonar.

María Heimisdóttir sagði upp störfum sem forstjóri í lok nóvember. Hún var skipuð forstjóri árið 2018 af Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra að loknu umsóknarferli. María sagðist ekki geta borið ábyrgð á rekstri stofnunarinnar þar sem hún væri vanfjármögnuð.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var Sigurður Helgi skipaður forstjóri án þess að starfið væri auglýst. Sigurður Helgi hefur frá árinu 2013 starfað sem skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu en hann var valinn úr hópi nítján umsækjenda.

Sig­urður Helgi hef­ur meist­ara­gráðu í op­in­berri stjórn­sýslu við hag­fræði- og áætlana­deild há­skól­ans í Hró­arskeldu í Dan­mörku og bakka­lár­próf í fé­lags­fræði við Há­skóla Íslands. Hann var eig­andi og fram­kvæmda­stjóri ráðgjafa­fyr­ir­tæk­is­ins Stjórn­hátta ehf. sem veitti ráðgjöf á sviði stjórn­sýslu og rík­is­fjár­mála, samn­ings­gerðar, ár­ang­urs­stjórn­un­ar, fjár­mála­stjórn­ar, kostnaðargrein­ing­ar og starfs­manna­mála.

Á ár­un­um 2001 til 2004 var hann aðstoðarfram­kvæmda­stjóri og yf­ir­maður fjár­mála og stjórn­sýslu Nor­rænu ráðherra­nefnd­ar­inn­ar. Sig­urður Helgi starfaði jafn­framt um fjög­urra ára skeið hjá OECD í fjár­laga- og stjórn­un­ar­deild op­in­berr­ar stjórn­sýslu (PUMA). Á fyrri hluta 10. ára­tug­ar­ins starfaði Sig­urður Helgi í fjár­málaráðuneyt­inu, meðal ann­ars að ráðgjöf um ný­skip­an í rík­is­rekstri.

Þakklátur fyrir tækifærið

Sigurður Helgi segir í samtali við Vísi að honum lítist vel á starfið sem sé spennandi og mjög mikilvæg stofnun í heilbrigðiskerfinu.

„Ég er þakklátur fyrir tækifærið til að takast á við þetta,“ segir Sigurður. Gert er ráð fyrir því að hann hefji störf 1. febrúar. Hann vildi ekki ræða skipunina frekar í bili enda ekki búið að greina formlega frá vistaskiptunum.

„Ég á eftir að hitta starfsfólkið, ræða við það og kynna mér starfsemina,“ segir Sigurður.

Uppi varð fótur og fit fyrir rúmum þremur mánuðum þegar Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra skipaði Hörpu Þórisdóttur þjóðminjavörð án þess að staðan væri auglýst. Flokksbróðir Lilju í Framsókn er Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

Fjármálaráðuneytið hefur nánast óslitið heyrt undir Bjarna Benediktsson frá árinu 2013 ef undan eru skildir ellefu mánuðir þar sem hann var forsætisráðherra í stuttlífri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar.

Á vef Sjúkratrygginga kemur fram að hlutverk Sjúkratrygginga sé að tryggja réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu. Þá segir að framtíðarsýn Sjúkratrygginga sé

  • stuðlar að bættum lífsgæðum með aðgengi að góðri og öruggri heilbrigðisþjónustu
  • stuðlar að því að hámarka virði heilbrigðisþjónustu
  • er eftirsóknarverður vinnustaður

Uppfært klukkan 15:40

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kemur fram að skipunin sé gerð á grundvelli heimildar í 36. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og Sigurður fluttur úr embætti skrifstofustjóra í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Nánari útlistun á reynslu Sigurðar má sjá að neðan.


Reynsla nýr forstjóra Sjúkratryggina

Sigurður hefur stýrt skrifstofu stjórnunar og umbóta í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá árinu 2013 og jafnframt verið staðgengill ráðuneytisstjóra. Undir skrifstofuna falla öll helstu viðfangsefni sem setja ramma um stjórnun og rekstur ríkiskerfisins, þ.m.t. framkvæmd fjárlaga, fjárstýring, reikningsskil og rekstrarmálefni ríkisins, lánamál, umbótastarf, stafræn umbreyting, eigna- og framkvæmdamál, eignarhald félaga og stefnumörkun í mannauðs- og kjaramálum.

Sigurður hefur áður gegnt embætti aðstoðarframkvæmdarstjóra Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn þar sem hann var yfirmaður fjármála og stjórnsýslu, starfi sérfræðings í umbótum í opinberum rekstri hjá Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) í París og starfi sérfræðings í fjármálaráðuneytinu. Þá stýrði hann um árabil ráðgjafarfyrirtækinu Stjórnháttum sem veitti stjórnvöldum margháttaða ráðgjöf um umbætur og skipulagsbreytingar í opinberri starfsemi.

Sigurður hefur í tengslum við störf sín unnið að fjölþættum verkefnum á sviði heilbrigðismála. Meðal annars tók hann virkan þátt í undirbúningi breytinga sem leiddu til laga um sjúkratryggingar og stofnunar Sjúkratrygginga Íslands árið 2008. Þá situr hann í stjórn Nýs Landspítala ohf. sem annast uppbyggingu á nýjum innviðum Landspítala.

Sigurður er með meistaragráðu í stjórnsýslu frá Roskilde Universitet, með sérhæfingu í heilsuhagfræði og stjórnun heilbrigðisþjónustu.


Tengdar fréttir

Samið við Klíníkina um að­gerðir vegna endó­metríósu

Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Klíníkina um kaup á aðgerðum vegna endómetríósu. Samningurinn kveður á um að þeir sem eru í brýnustu þörfinni njóti forgangs. Með samningnum fjölgar því úrræðum vegna endómetríósu og þjónustan eflist enn frekar. Um stórt skref er að ræða þegar kemur að úrræðum og þjónustu við sjúklinga með endómetríósu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×