Menning

„Vara­skeifan“ væntan­leg í verslanir í dag í Reykjavík

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Mikill spenningur hefur myndast í keingum bókaútgáfuna.
Mikill spenningur hefur myndast í keingum bókaútgáfuna. Getty/Mike Kemp

Nýja bók Harry Bretaprins, „Varaskeifan“ kemur í stærstu verslanir Pennans Eymundsson á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þetta staðfestir Svanborg Þórdís Sigurðardóttir, vörustjóri erlendra bóka hjá fyrirtækinu.

Svanborg segir ekki hægt að líkja umstanginu sem myndast hefur í kringum bókina við neina aðra bókaútgáfu. Hún nefnir að útgáfu Harry Potter bókanna og bók Bandaríkjaforsetans fyrrverandi, Barack Obama.

„Við eigum von á að það verði komin einhver eintök í búðir í Reykjavík í dag og svo kemur önnur sending í næstu viku [...] þannig við erum að fara að dreifa henni í búðir í dag. Það verður þá í okkar stærstu búðum til að byrja með, Austurstræti, Kringlu og Smáralind,“ segir Svanborg.

Hún segir gríðarlegan áhuga á kóngafólkinu og sögu Harry og eiginkonu hans vera á Íslandi sem og víða um heim. Erfitt sé að miða eftirvæntinguna við eitthvað annað.

„Þetta kveikir í fólki, þannig þetta er mjög, mjög sérstakt og þetta er í raun og veru svolítið einstakt. Ég veit ekki alveg hvort maður getur miðað þetta við neitt. Þetta er ólíkt til dæmis eins og Barack Obama, þetta er allt öðruvísi bók og Harry Potter líka öðruvísi bók. Þetta er bara mjög sérstök bók og fólk er bara gríðarlega spennt,“ segir Svanborg.

Aðspurð hvort hún viti til þess að verið sé að þýða bókina á íslensku segist hún ekki vita til þess en það sé ekki útilokað. Sé einhver að þýða bókina þurfi sá hinn sami að hafa hraðar hendur.

„Það er aldrei að vita nema það sitji einhver sveittur við núna,“ segir Svanborg.


Tengdar fréttir

Varaskeifan segir frá: Manndráp í Afganistan, kókaín og fjölskylduerjur

Eintök af nýrri sjálfsævisögu Harry Bretaprins sem nefnist „Spare“ eða „Varaskeifan“ hafa valdið miklum usla hjá þeim meðlimum bresku pressunnar sem hafa fengið að lesa bókina á undan almenningi. Í bókinni talar Harry um það þegar hann tapaði sveindómnum, notaði kókaín og drap 25 í Afganistan.

Karl gantaðist með að vera ekki faðir Harry

Í nýrri bók Harry bretaprins, Spare, tjáir hann sig í fyrsta sinn um þrálátan orðróm um að Karl Bretakonungur sé í raun ekki faðir Harry heldur James Hewitt, fyrrum ástmaður Díönu prinsessu og móður Harry.

Bóka­verslanir opnuðu á mið­nætti þegar Spare fór í sölu

Bókaverslanir í Lundúnum opnuðu á miðnætti í nótt, þegar æviminningar Harry Bretaprins fóru í sölu. Raðir mynduðust fyrir utan verslanirnar og talsmenn keðjunnar Waterstone sögðu um að ræða eina mestu forsölu bókar síðasta áratuginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×