Furious og félagar nálgast toppliðin

Snorri Rafn Hallsson skrifar
furious

Ármann og Breiðablik mæltu sér í gærkvöldi mót við kjarnorkuverið í Nuke og byrjaði Breiðablik í vörn eftir þrefalda fellur frá Furious í hnífalotunni. Skammbyssulotan féll einnig í skaut Breiðabliks en Ármann komst svo yfir 3–1 þar sem Vargur lét deigluna syngja og liðinu tókst að sprengja sprengjurnar á svæði B. 

Liðin skiptust svo á lotum en Breiðablik skellti í lás í stöðunni 4–3 og vann allar loturnar sem eftir voru í fyrri hálfleik nema þá síðustu eða samtals 8 lotur í röð. Furious, Viruz og Sax áttu allir mikilvægar fellur á ögurstundu. Breiðablik lék óttalausan og árasargjarnan leik sem hélt aftur af öllum aðgerðum Ármanns og fækkaði leikmönnum snemma í lotunum.

Staðan í hálfleik: Breiðablik 10 – 5 Ármann

Ármann byrjaði síðari hálfleikinn vel og náði að aftengja sprengjurnar í fyrstu tveimur lotunum en Breiðablik tókst að gera þá blanka og halda þar með uppi pressu sem Ármann réði ekki við. Leikmenn Breiðabliks héldu hópinn þétt og framkvæmdu baneitraðar aðgerðir sem stilltu Ármanni upp við vegg. Meðbyrinn jókst því sem á leið á leikinn og Furious og Sax innsigluðu sigurinn í 23. lotu. 

Lokastaða: Breiðablik 16 – 7 Ármann

Með sigrinum stökk Breiðablik upp um tvö sæti í deildinni og stal því fimmta af Ármanni. 

Næstu leikir liðanna:

  • Ármann – Dusty, þriðjudaginn 3/1, klukkan 20:30
  • Breiðablik – Viðstöðu, fimmtudaginn 5/1, klukkan 21:30

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira