Lífið

Stjörnu­lífið: Jóla­gleði, bumbu­myndir og gleði­fréttir

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.

Desember er genginn í garð. Í gær var annar sunnudagur í aðventu og er jólahaldið komið á fullt. Vikan einkenndist því af jólatónleikum, jólaboðum og almennri jólagleði sem ætla má að ríki út næstu vikurnar.

Hjónin María Birta og Elli Egilsson birtu hjartnæma mynd af dóttur sinni. Hjónin héldu komu dótturinnar útaf fyrir sig og hafa ekki birt neina mynd af henni á samfélagsmiðlum fyrr en nú.

Sjá einnig: „Maðurinn minn er besti pabbinn í öllum heiminum!“

Athafnakonan og samfélagsmiðlastjarnan Birgitta Líf yljaði sér við minningar frá Bali, þar sem hún var stödd í nokkrar vikur ásamt kærasta sínum Enok Jónssyni.

Áslaug Arna fagnaði 32 ára afmæli sínu í góðum félagsskap.

„Það er engin að fara fokka í þessum,“ skrifar leikkonan Þórdís Björk undir mynd af sér og söngkonunni Jóhönnu Guðrúnu. Um er að ræða plakat fyrir sýninguna Chicago, í uppsetningu Leikfélags Akureyrar, sem frumsýnd verður í janúar. Þórdís og Jóhanna fara með hlutverk Roxýar og Velmu.

Athafnakonan og samfélagsmiðlastjarnan Camilla Rut fyllti á D-vítamín birgðirnar fyrir veturinn á Spáni þar sem hún var stödd ásamt kærasta sínum.

Tónlistarkonan Greta Salóme birti dásamlega mynd af sér og nýfæddum dreng sínum.

Jólavertíðin er hafin hjá tónlistarmanninum Friðriki Ómari.

Tónlistarkonan Svala Björgvins var á meðal þeirra sem kom fram á tónleikum Friðriks. 

Stjórnmálakonan og verslunareigandinn Brynja Dan hélt sitt árlega jólaboð „Jóla-Dan“ fyrir vinkonuhópinn og er óhætt að segja að öllu hafi verið tjaldað til.

Matarbloggarinn Linda Ben deildi bestu fréttum vikunnar. Í síðustu viku fór hún í aðgerð þar sem æxli var fjarlægt af eggjastokknum. Um helgina fékk hún svo símtal þess efnis að æxlið hafi verið góðkynja. Linda er öll að koma til eftir aðgerðina og hlakkar til komandi tíma.

Leikarinn Villi Neto hélt fullveldisdaginn hátíðlegan. 

Samfélagsmiðlastjarnan og vélaverkfræðingurinn Katrín Edda birti fallegar bumbumyndir og greindi um leið frá því að aðeins þrír dagar væru í settan dag. Ef flett er í gegnum myndirnar má einnig finna einstaklega krúttlega fjölskyldumynd.

Sigga Beinteins hélt sína árlegu jólatónleika. Gestir hennar voru þau Páll Óskar, Bjarni Ara, Guðrún Gunnar og Dísella Lárusdóttir og voru tónleikarnir vel lukkaðir. „Alveg galið hvað söngröddin þín heldur áfram að verða bara betri og kraftmeiri, þú þarna með þín sextugu leðurlungu,“ skrifaði Páll Óskar til Siggu eftir tónleikana.

Ofurhlauparinn Mari Jaersk fagnaði 30 ára afmæli í vikunni. Hún hélt upp á afmælið á veitingastaðnum Felino og fékk afmælisköku frá sjálfum Jóa Fel.

Sálfræðingurinn, hlaðvarpsstjórnandinn og rithöfundurinn Beggi Ólafs birti fallega kveðju til Mari í tilefni dagsins.

Kírópraktorinn og fagurkerinn Gummi Kíró fagnaði tímamótum. Þrjú ár eru síðan hann og unnusta hans Lína Birgitta byrjuðu saman.

Auk þess fagnaði Lína Birgitta nýju jólaboxi sem hún var að gefa hún með hárvörufyrirtækinu John Frieda.

Fegurðardrottningin Fanney Ingvarsdóttir skellti sér í jólamyndatöku með fjölskyldunni. 

Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir klæddi sig upp.

Förðunarfræðingurinn Kolbrún Anna naut lífsins á Akureyri.

Bubbi Morthens fangaði sýningu númer 140 af Níu líf.

Athafnakonan Sylvía Briem hélt jólaboð og klæddi fjölskyldan sig heldur betur upp í takt við þemað.

Tískubloggarinn Pattra Sriyanonge bíður eftir jólunum.

Dansarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ástrós Traustadóttir skellti sér í bumbumyndatöku í náttúrunni hjá LXS-vinkonu sinni, Ínu Maríu, í tilefni þess að hún er gengin 28 vikur með dóttur sína.

Sjá: Ástrós og Adam eiga von á barni

Þá skellti ljósmyndarinn sjálfur, Ína María, sér út á lífið.

Þjálfarinn Sandra Björg naut aðventunnar í þorpinu Solvang í Kaliforníu en Sandra er búsett í Los Angeles.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: „Sá sem spottar bjórflöskuna fyrst fær fimmhundruð kall“

Stór tímamót eins og afmæli og edrú afmæli fengu að njóta sín á Instagram síðustu daga. Íslendingar virðast vera orðnir spenntir fyrir jólunum enda fyrsti í aðventu á sunnudaginn. Jólaseríur, skraut og einstaka jólatré eru meira að segja byrjuð að skjóta upp kollinum á samfélagsmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×