Ferðamálastofa er með teljara á svæðinu en samkvæmt þeim hafa hátt í tvö hundruð þúsund manns heimsótt svæðið það sem af er ári. Eftir að gosið hófst í ágúst komu mest nærri sjö þúsund gestir á sólarhring en þessa dagana eru gestirnir þó færri.
„Tölur Ferðamálastofu segja að þetta séu svona frá fimm hundruð manns upp í allt að þúsund þegar mest er daglega og við sjáum það líka að það eru mjög margir á tjaldsvæðunum okkar enn þá þó það sé nú kominn vetur,“ segir Fannar Jónasson bæjarstjóri í Grindavík.

Sérstakur skúr var útbúinn á einu af bílastæðunum á svæðinu um síðustu mánaðamót. Þar er aðstaða fyrir landverði. Þeir eru jafnan tveir til þrír á svæðinu og leiðbeina þeir og aðstoða þá sem leggja leið sína að gosstöðvunum.
„Þetta er stórtíðindalaust. Fólk er eitthvað aðeins að detta og hrufla sig og við bregðumst við því eins og við þurfum að gera og ef við þurfum meira viðbragð þá kemur það bara en það hefur ekkert gerst núna í fleiri vikur,“ segir Dagur Jónsson landvörður hjá Umhverfisstofnun.

Engin klósett eru á svæðinu. Eftir langan göngu hafa sumir ferðalanganna farið út í hraunið við bílastæðin og gert þarfir sínar þar. Því fylgir mikill óþrifnaður en sjá má klósettpappír og saur úti í móa. Um tíma voru kamrar úr plasti á svæðinu en þeir voru fjarlægðir þar sem þeir fuku í vondu veðri.
„Það eina sem vantar það eru klósett hérna en allt annað er alveg ágætt,“ segir Dagur.

Landeigendur rukka nú inn á bílastæðin við gosstöðvarnar. Gjaldtakan var tekin upp til að bæta aðgengi og þjónustu á svæðinu og eru klósettmálinu á þeirra ábyrgð.

Ferðalangarnir sem koma að gosstöðvunum koma víða að og virðist sem aðdráttarafl staðarins sé enn töluvert.
„Langflestum finnst þetta stórfenglegt og ég held að þetta sé nú komið til að vera í einhver ár að ferðamenn séu að fara hér upp,“ segir Dagur.