Neytendur

Mikil­vægt að huga að ís­lensku í aug­lýsingum

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Ráðherra segir beitingu laga mikilvæga til þess að tryggja notkun íslensku.
Ráðherra segir beitingu laga mikilvæga til þess að tryggja notkun íslensku. Vísir/Vilhelm

Á árunum 1993 til 2005 hafa 35 mál verið tekin fyrir hjá neytendastofu vegna tungumáls í auglýsingum sem beint er til íslenskra neytenda. Samkvæmt lögum skulu þesskonar auglýsingar vera á íslensku. Eitt slíkt mál er nú til skoðunar hjá neytendastofu en aðeins hafa átta mál verið tekin fyrir síðan 2005. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra segir beitingu laga mikilvæga í þessum efnum.

Á vef stjórnarráðsins er fjallað um málið en ráðherra er sögð hafa lagt áherslu á þessi mál á ríkisstjórnarfundi. Gott sé að fyrirtækin sem hafi verið áminnt vegna auglýsinga sem ekki standist lögin hafi í öllum tilfellum breytt téðum auglýsingum.

„Við megum ekki gleyma því að þó svo að íslensk tunga sé ef til vill ekki stór í alþjóðlegum samanburði þá er hún er lykillinn að menningu okkar og hún lýkur upp heimi sem annars væri öllum hulinn,“ segir Lilja.

Málefni þessi hafa verið í umræðunni síðustu misserin. Sem dæmi má nefna auglýsingu fyrir sænska vörumerkið Oatly hér á landi en vörumerkið framleiðir plöntumjólk úr höfrum ásamt öðrum grænkera varning.

Hér má sjá ensku útgáfu auglýsingarinnar ásamt þeirri íslensku. 

Auglýsingu fyrir plöntumjólk fyrirtækisins var dreift víða og báru auglýsingarnar slagorðið, „It‘s like milk but made for humans“ en slagorðið hefur fylgt vörumerkinu frá upphafi.

Á endanum var auglýsingunni breytt eftir að mikil umræða skapaðist í kringum það að auglýsingarnar væru ekki á íslensku og hvort það stæðist yfirhöfuð lög. Úr varð slagorðið, „Eins og mjólk en gerð fyrir fólk.“

Á vef stjórnarráðsins er ákvörðun Isavia um að breyta skiltum sínum þannig að íslenskan sé í meira aðalhlutverki, hampað. Einnig er minnst á það að Icelandair breytti starfsháttum sínum á þann veg að nú skuli farþegar vera ávarpaðir fyrst á íslensku þegar þeir eru um borð í vélum flugfélagsins.


Tengdar fréttir

Telja auglýsinguna löglega en breyttu henni þó

Slagorðið „It’s like milk but made for humans“ hefur fylgt vörumerki Oatly frá upphafi og um allan heim. Páll Hilmarsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Innes, segir forsvarsmenn vörumerkisins telja að slagorðið og auglýsingar með því séu löglegar hér á landi.

Aftur byrjuð að á­varpa far­þega fyrst á ís­lensku

Flugliðar í áhöfn flugvéla Icelandair eru aftur farnir að ávarpa farþega fyrst á íslensku og að því loknu á ensku við flugtak og lendingu. Með þessu er horfið aftur til þess sem áður var, en fyrir nokkrum árum var fyrirkomulaginu breytt og farþegar fyrst ávarpaðir á ensku.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×