Innlent

Eigin­konu Ís­lendings synjað um vega­bréfs­á­ritun vegna dular­fulls korts

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Synjunin byggir á korti sem lögmaður konunnar segir hvergi hafa verið birt opinberlega.
Synjunin byggir á korti sem lögmaður konunnar segir hvergi hafa verið birt opinberlega. Vísir

Landsréttur hefur staðfest úrskurði Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála sem synjuðu konu frá Kína um vegabréfsáritun, þar sem heimahérað konunnar er flokkað sem áhættusvæði hvað varðar möguleikann á því að íbúar yfirgefi ekki Schengen-svæðið innan tímamarka.

Um er að ræða kort sem er sagt hafa verið unnið af landamæravörðum í evrópskum sendiráðum í Pekíng en hefur hvergi verið birt opinberlega.

Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag en þar kemur fram að konan er gift íslenskum ríkisborgara og var boðið í heimsókn til landsins árið 2018. Fyrir lágu flugmiðar, gisting og loforð um uppihald en konunni var hins vegar synjað um vegabréfsáritun með vísan til áðurnefnds korts. 

Eggert Páll Ólason, lögmaður konunnar, hefur verulegar efasemdir um lögmæti þess að byggja synjun á kortinu, sem virðist ekki notað af öðrum yfirvöldum.

Þá hefur blaðið eftir eiginmanni konunnar að í umræddu héraði búi um 50 milljónir manna og áhættumat á íbúum í heild segi lítið um persónulega stöðu konu hans, sem sé ekki aðeins gift Íslending heldur eigi skuldlausa fasteign í Kína og dóttur þar í landi.

Konan íhugar að fara með málið til Hæstaréttar.

Dómur Landsréttar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×