Rafíþróttir

4. umferð CS:GO lokið: Stórir sigrar og óvænt tap

Snorri Rafn Hallsson skrifar
liðið 4 umferð

Eftir 4. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO er Dusty eina liðið með fullt hús stiga.

Leikir vikunnar 

Dusty 16 – 3 TEN5ION

Það voru liðin í efsta og neðsta sæti deildarinnar sem mættust í fyrsta leik 4. umferðarinnar í Ljósleiðardeildinni í CS:GO. Leikurinn fór fram í Overpass og það var botnlið TEN5ION sem vann fyrstu tvær loturnar með Vikka og Hugo í fararbroddi. Dusty hélt hins vegar ró sinni og stillti sér upp aftarlega á kortinu til að slökkva í TEN5ION og vinna allar loturnar sem eftir voru í fyrri hálfleik. Staðan var því 13–2 þegar Dusty brá sér í sóknina og enn sem áður var StebbiC0C0 allt í öllu í leik þeirra.

Ármann 16 – 1 Fylkir

Það var allt annað Fylkislið sem mætti Ármanni í Nuke í vikunni en það lið sem stóð uppi í hárinu á Þórsurum í síðustu viku. LeFluff og félagar sóttu hratt í skammbyssulotunni og kræktu sér í sitt fyrsta og eina stig í leiknum.

Það var líka allt annað að sjá Ármann sem hafði tapað stórt, 16–3, fyrir Dusty í leiknum á undan. Hungrið skein í gegn í liðinu og Ofvirkur fór á kostum á vappanum. Hann sótti margar opnanir, átti fjöldan allan af margföldum fellum og skapaði því næg tækifæri fyrir liðsfélaga sína sem þeir nýttu svo sannarlega. Vargur skellti í einn klassískan ás á rampinum í 14. lotu og kláraði leikinn með tvöfaldri fellu á sprengjusvæðinu í þeirri 17.

LAVA 16 – 9 Breiðablik

Nuke kortið er aftur komið sterkt inn í Ljósleiðaradeildina en á fimmtudagskvöldið tók LAVA á móti Breiðabliki. Leikurinn var nokkuð jafn í upphafi þar sem Lillehhh var í aðalhlutverki hjá Breiðabliki en fljótlega komst LAVA upp á lagið og vann liðið síðustu 8 lotur hálfleiksins.

Sigurganga LAVA hélt áfram í síðari hálfleik þar sem Instant átti fjórfalda fellu til að koma LAVA í stöðuna 14–4. Sigurinn var þó ekki alveg í höfn strax þar sem Breiðablik veitti örlitla viðspyrnu, en undir lokin hófst það og TripleG innsiglaði sigurinn einn á móti tveimur andstæðingum í 25. lotu.

NÚ 16 – 5 Þór

Aftur var Nuke á dagskrá þegar NÚ og Þór mættust á fimmtudagskvöldið. Liðin skiptust á lotum í upphafi leiks en lið NÚ var einstaklega lagið í því að koma sprengjunni fyrir og verja hana aðgerðum Þórs. Þannig unnu Bl1ck, Ravle, CLVR og félagar fjölmargar lotur í röð og höfðu gott forskot inn í síðari hálfleikinn, 10–5.

Í sókninni raðaði Ravle fellunum inn í fallegum fléttum undir stjórn Bjarna og vann NÚ allar 6 lotur síðari hálfleiksins. Þórasar komust aldrei almennilega á skrið og munaði þar mestu um að hinir hæfileikaríku Dabbehhh og Minidegreez áttu báðir afar slappan leik.

Viðstöðu 19 – 17 SAGA

Umferðinni lauk á æsispennandi og hnífjafnri viðureign Viðstöðu og SAGA í Ancient. Lið Viðstöðu hóf sóknina af krafti þar sem Mozar7, Xeny og Blazter voru í miklu stuði en eftir að Allee missti vappann í hendur ADHD sneri SAGA blaðinu við. DOM var einnig kominn á gott skrið og hafði SAGA því yfirhöndina eftir fyrri hálfleik.

Lið Viðstöðu var þó öllu öflugri í vörninni og komu sér snemma í yfirburðastöðu. Hvorugu liðinu tókst þó að vinna leikinn í venjulegum leiktíma og því fór leikurinn í framlengingu.

Þar hafði lið Viðstöðu loks yfirhöndina. Allee átti ótrúlega aftengingu í miðjum reykjarmekki eftir frábæra lotu frá SAGA. Blazter lagði grunninn að 17 stigi Viðstöðu með þrefaldri fellu og vann liðið allar lotur sínar í vörn. SAGA krækti þó í tvær lotur til viðbótar áður en Allee innsiglaði sigurinn fyrir Viðstöðu.

Hér má sjá brot úr leiknum:

Staðan

Eins og fyrr segir er Dusty nú eina liðið með fullt hús stiga og sitja þeir því öruggir í efsta sæti deildarinnar. Þar á eftir raða sér Nú, Ármann sem stukku bæði upp um tvö sæti og svo Þór sem féll úr því öðru niður í það fjórða vegna markatölu. 

SAGA og LAVA eru nú jöfn að stigum í fimmta og sjötta sæti. Lið Viðstöðu jafnaði Fylki og Breiðablik að stigum en enn er TEN5ION stigalaust á botninum.

Næstu leikir

5. umferð Ljósleiðaradeildarinnar fer fram dagana 11. og 13. október:

  • LAVA – SAGA, þriðjudaginn 11/10, klukkan 19:30.
  • TEN5ION – Breiðablik, þriðjudaginn 11/10, klukkan 20:30.
  • Þór – Viðstöðu, fimmtudaginn 13/10, klukkan 19:30.
  • Fylkir – Dusty, fimmtudaginn 13/10, klukkan 20:30.
  • NÚ – Ármann, fimmtudaginn 13/10, klukkan 21:30.

Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Tilþrifin: Blóðug barátta í framlengdum leik í Ancient

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það blóðug barátta á Ancient kortinu í framlengdum leik SAGA og Viðstöðu sem á sviðsljósið.

Blazter kom Viðstöðu loks á blað

Það var til mikils að vinna fyrir bæði lið þegar lið Viðstöðu og SAGA mættust í hnífjöfnum leik í Ancient.

Instant leiddi LAVA til sigurs

Breiðablik og LAVA sem voru í 7. og 8. sæti deildarinnar tókust á í gærkvöldi. LAVA hafði mikla yfirburði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×