Var bannað að tala um varnarvegg eftir fráfall Díönu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. september 2022 08:00 Mark Lawrenson stóð vaktina í vörn Liverpool um sjö ára skeið. Eftir að ferlinum lauk starfaði hann við fjölmiðla. getty/Peter Byrne Lýsendur og álitsgjafar hjá BBC voru beðnir um að tala ekki um varnarveggi eftir fráfall Díönu prinsessu fyrir 25 árum.
Þetta segir Mark Lawrenson, fyrrverandi álitsgjafi hjá BBC. Honum var sagt upp störfum hjá BBC fyrr á þessu ári eftir að hafa starfað þar í þrjá áratugi. Í viðtali við The Sunday Times ber Lawrenson sig illa og segist hafa verið rekinn því hann er 65 ára hvítur karlmaður, eins og hann orðar það. Lawrenson kvartar einnig sáran yfir því að hin svokallaða woke menning hafi náð fótfestu innan BBC og álitsgjafar megi ekki lengur segja það sem þeir vilja. Þetta virðist þó ekki vera nýtt af nálinni því Lawrenson tekur aldarfjórðungs gamalt dæmi um að lýsendur og álitsgjafar BBC voru beðnir um að passa orðanotkun sína eftir að Díana prinsessa lést í bílslysi í lok ágúst 1997. Díana og kærasti hennar, Dodi Fayed, létust þegar bíll sem þau voru farþegar í var ekið á vegg í París árla morguns. Sex dögum eftir bílslysið var Lawrenson að vinna fyrir BBC við leik Bradford City og Sunderland í B-deildinni. Hann segir að yfirmenn sínir hafi beðið hann að tala ekki um varnarvegg þegar lið fengu aukaspyrnu á hættulegum stað. „Ég man ekki hverjum ég var að lýsa með en ég spurði hann hvort þetta væri svona í alvöru og hann svaraði játandi,“ sagði Lawrenson. Hann naut mikillar velgengni með Liverpool á árunum 1981-88 og varð meðal annars fimm sinnum enskur meistari með liðinu og einu sinni Evrópumeistari. Lawrenson lék 39 landsleiki fyrir Írland og skoraði fimm mörk.
Enski boltinn Kóngafólk Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sjá meira