Lífið

Fögnuðu saman nýjasta samstarfinu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Lína Birgitta Sigurðardóttir, Sólrún Diego, Björn Bragi Arnarson og Gurrý Jónsdóttir.
Lína Birgitta Sigurðardóttir, Sólrún Diego, Björn Bragi Arnarson og Gurrý Jónsdóttir.

Lína Birgitta Sigurðardóttir, Sólrún Diego og Gurrý Jónsdóttir, þáttastjórnendur hlaðvarpsins Spjallið, hafa gefið út nýtt partýspil. Björn Bragi Arnarson gefur út spilið en hann gaf einnig út skipulagsdagbækur Sólrúnar, auk bókanna Heima og Skipulag.  

Fögnuðu þau spilinu um helgina með veglegu partýi.

„Þetta er partýspil en það er hins vegar hægt að spila það hvar sem er og hvenær sem er,“ segir Lína Birgitta um spilið. 

„Þetta er ekki borðspil heldur kemur það í nettum kassa sem inniheldur spjöld. Spilið skiptist í fimm flokka og það er hægt að spila það með öllum flokkunum en svo er hægt að velja sína uppáhalds og spila með þeim. En eins og við segjum þá gerir Örlagaspil gott partý betra.“

Gurrý, Lína Birgitta og Sólrún. 

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir frá þessum flotta viðburði. 

Lea Helgadóttir, Birgitta Líf Björnsdóttir, Magnea Jónsdóttir og Ástrós Traustadóttir.
Silla og Sara, umboðsaðilar Frank Body og BeautyBlender á Íslandi. 
Egill Fannar og Gummi Kíró
Bára og Sara. 

Fleiri myndir má finna í albúminu hér fyrir neðan. 


Tengdar fréttir

Þetta eru liðin sem keppa í þriðju þáttaröð af Kviss

Spurningaþátturinn Kviss hefur göngu sína á ný í kvöld undir stjórn Björns Braga Arnarssonar. Eins og í fyrri tveimur þáttaröðunum munu 16 lið mæta til leiks og keppa í útsláttarkeppni þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari. 

Þor­­steinn og Birgitta Líf tekju­hæst á­hrifa­valda

Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur og umsjónarmaður hlaðvarpsins Karlmennskunnar, var tekjuhæstur áhrifavalda árið 2021 samkvæmt nýju tölublaði Frjálsrar verslunar. Þorsteinn var með 1.369.000 krónur á mánuði en næst á eftir honum kom Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class, eigandi Bankastræti Club og umboðsmaður, með 1.275.000 krónur á mánuði.

Sólrún Diego gefur út skipulagsbækur

Sólrún Diego ætlar að skella sér aftur í jólabókaflóðið og sendir frá sér tvær bækur fyrir jólin í ár. Hún segir að verkefnið hafi orðið til í kórónuveirufaraldrinum. Markmiðið er að auðvelda öðrum að skipuleggja sig betur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×