Innlent

Ofurölvi bílstjórar óku inn í mannmergðina á Menningarnótt

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Dagur B. Eggertsson vill bregðast við auknum vopnaburði og hnífstungumálum í miðbænum. Ásgeir Þór Ásgeirsson aðsoðarlögreglustjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir mikla mildi að tveir ofurölvi bílstjórar hafi ekki valdið stórslysum þegar þeir óku inn á svæði þar sem mikill mannfjöldi var á Menningarnótt. 
Dagur B. Eggertsson vill bregðast við auknum vopnaburði og hnífstungumálum í miðbænum. Ásgeir Þór Ásgeirsson aðsoðarlögreglustjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir mikla mildi að tveir ofurölvi bílstjórar hafi ekki valdið stórslysum þegar þeir óku inn á svæði þar sem mikill mannfjöldi var á Menningarnótt.  Vísir

Mikil mildi þykir að tveir ofurölvi ökumenn hafi ekki valdið stórslysum á Menningarnótt þegar þeir óku inn í mannmergð þar sem götulokanir voru í gildi. Lögreglan segir gríðarleg vonbrigði að enn eitt hnífaárásarmálið hafi komið upp. Borgarstjóri vill bregðast við auknum hnífaárásum ungmenna.

Tvöfalt fleiri mál voru skráð hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á Menningarnótt en kvöldið á undan. Þó nokkur alvarleg atvik komu upp.  Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri segir alvarlegasta málið hafa verið hnífstunguárás á Lækjartorgi þar sem tveir slösuðust. 

„Það eru rauð flögg hjá okkur þegar við sjáum helgi eftir helgi átök sem enda með því að eggvopnum er beitt. Við erum ekki sátt við það og ekki heldur samfélagið,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson aðstoðarlögreglustjóri hjá LRH.

Ásgeir segir enn fremur mikla mildi að ekki hafi orðið stórslys í miðbænum vegna ölvunaraksturs skömmu eftir flugeldasýninguna á Menningarnótt.

„Við fengum tilkynningar að ölvaðir ökumenn væru að keyra um eftir flugeldasýninguna þar sem áttu aðeins að vera gangandi vegfarendur. Annar þeirra ók utan í mann á rafhlaupahjóli við Þjóðleikhúsið á Hverfisgötu þar sem var fyrir gríðarlegur mannfjöldi. Við náðum honum svo á Sæbraut. Hinn keyrði út Lindargötu og að Lækjargötu þar sem hann náðist mjög nálægt stóra sviðinu. Þá var hann búinn að keyra á tvö bíla. Þar var líka mikill mannfjöldi á leið heim eftir tónleika og flugeldasýningu. Það er í raun mesta mildi að ekki hafi farið ver,“ segir Ásgeir. 

Ökumennirnir voru látnir gista fangageymslur.

Þá náðist hópárás á mynd á Austurvelli þar sem sést þegar hópur fólks ræðst á ungan mann og lætur höggin dynja á höfði hans. Samkvæmt heimildum fréttastofu er líðan mannsins eftir atvikum en hann er meðal annars kinnbeinsbrotinn.

Mikilvægt að bregðast við

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur áhyggjur af þróun mála.

„Ég hef áhyggjur af fjölgun hnífamála í miðborg Reykjavíkur. Eftir Menningarnótt förum við alltaf yfir málin ásamt lögreglu og öðrum skipuleggjendum og þetta verður rætt á næsta fundi. Það er mikilvægt að fylgjast með svona þróun og grípa inn í. 


Tengdar fréttir

Þrem­ur sleppt eft­ir yf­ir­heyrsl­ur vegn­a hnífs­tung­u

Þremur unglingspiltum sem voru handteknir í gær vegna hnífsstungu við Ingólfstorg í fyrrinótt hefur öllum verið sleppt að lokinni skýrslutöku. Einn þeirra er grunaður um að hafa stungið dreng undir lögaldri í bakið í fyrrinótt.

Aldrei jafn mörg at­vik hjá slökkvi­liðinu á einni nætur­vakt

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei þurft að flytja jafn marga með sjúkrabíl á næturvakt og þau gerðu á Menningarnótt í gær. Varðstjóri segir óvenjumikið hafa verið að gera miðað við fyrri Menningarnætur en að álag sem þetta fylgi svona mikilli mannmergð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×