Lífið

Stökkið: Féll fyrir David Attenborough í æsku

Elísabet Hanna skrifar
Rakel hefur alla tíð haft mikla ástríðu fyrir dýrum og velferð þeirra.
Rakel hefur alla tíð haft mikla ástríðu fyrir dýrum og velferð þeirra. Aðsend.

Rakel Dawn Hanson er dýrafræðingur sem er búsett í Bristol með kærastanum sínum James Scrivens. Hún vinnur við að gera dýralífsheimildarmyndir en áhuginn á faginu kom eftir að hún varð ástfangin að störfum David Attenborough í æsku.

Hvar ertu búsett?

Ég er búsett í Bristol í Bretlandi. Ég flutti upphaflega hingað til þess að fara í mastersnám við alþjóðlega dýraverndun og svo aftur til þess að læra dýralífsheimildarmyndargerð og Bristol er í raun höfuðstöðvar þessa iðnaðar.

Hvenær fluttirðu út?

Ég flutti fyrst út fyrir tíu árum og fór þá til Leeds til að stunda nám í dýrafræði. Þar á eftir bjó ég í Kaliforníu og kom loks til Bristol árið 2020.

Langaði þig alltaf til þess að flytja út?

Já ég var alltaf spennt að flytja út, aðallega út af því að ég gat ekki almennilega stundað námið sem ég vildi heima á Íslandi. Ég var alltaf voðalega skotin í Bretlandi en hef verið opin fyrir því að búa hvar sem er. 

Ég er viss um að ég á eftir að prófa eitthvað annað seinna.

Hvernig hefur heimsfaraldurinn haft áhrif á flutningana?

Ég bjó í Kaliforníu þegar heimsfaraldurinn skall á en ég var heppin að geta nýtt mér náttúruna þar í kring þannig ég fór mikið að sörfa og í fjallgöngur, burt frá öðru fólki. 

Þegar ég hóf svo seinni masterinn í Bretlandi var mikið kennt á netinu sem var frekar erfitt þar sem þetta er mjög verklegt nám. Hins vegar var ég svakalega heppin með bekk og þetta kom okkur þannig séð betur saman þar sem við vorum spennt að reyna komast út úr húsi og hittast á sem öruggastan hátt. 

Þetta kenndi okkur bara að sleppa takinu á því sem að við gátum ekki stjórnað og njóta grunntenginganna.

Hvernig byrjaðir þú að undirbúa ferlið að flytja?

Ég flutti fyrst út til Bretlands þegar ég var tvítug til Leeds í Bretlandi. Tilhugsunin var að sjálfsögðu ógnvekjandi að byrja nýtt líf í nýju landi en mér fannst það bara spennandi yfir höfuð. Það var smá yfirþyrmandi hvað það voru margir skólar hérna sem buðu upp á sama námið en með mismunandi áherslum. 

Það tók langan tíma að kanna alla skólana og finna hvað hentaði mér best. 

Síðan eru þetta dýrir skólar þannig að maður þurfti að vera frekar viss um að maður vildi fara í þann skóla sem maður var að velja. Þegar ég kom til Bretlands þá var flókið að finna íbúð, margir leigusalar neituðu að leigja stúdentum nema í stúdenta húsnæði. Þar af leiðandi tók það sinn tíma að sannfæra leigusalana að það yrði ekki neinn æsingur í íbúðinni, nema Eurovision party einu sinni á ári.

Hvað þarf að hafa í huga ef að maður ætlar að flytja til útlanda?

Það er gott að hafa hugmynd um hvaða svæði innan borgarinnar er hentugt að búa á. Sérstaklega með tilliti til þess hvort það sé auðvelt að labba, taka strætó eða keyra á vinnustaðinn eða í skólann. Það er gott að spjalla við einhvern sem að hefur búið þarna áður þar sem þau geta mælt með bestu stöðunum til þess að vera á.

Hvernig komstu í kynni við vinnuna sem þú ert í?

Ég vinn núna við dýralífsheimildarmyndargerð. Ég komst í kynni við það þegar ég, eins og flest allir, varð ástfangin af David Attenborough heimildarmyndunum þegar ég var krakki. 

Ég bjóst aldrei við að þetta væri eitthvað sem ég gæti gert þannig ég ákvað að byrja á að verða dýrafræðingur. 

Þegar ég sá hvað það voru mörg framleiðslufyrirtæki í Bristol og heill master í boði í heimildamyndargerð ákvað ég að reyna að láta draumana rætast og næla mér í meiri reynslu sem gæti hjálpað mér að komast inn í þennan iðnað.

Hvers saknarðu mest við Ísland?

Klárlega sundlauganna.

Hvers saknarðu minnst við Ísland?

Hvað það er dýrt að fljúga erlendis þar sem ég elska að ferðast.

Hvernig er veðrið?

Veðrið er oft voðalega breskt: Grátt og blautt, sérstaklega á veturnar. Ég myndi miklu frekar vera til í snjó heldur en rigningu. Hins vegar eru sumrin yndisleg hérna, reglulega í kringum 25 gráður. 

Svo eru Bretar alveg eins og Íslendingar í þeim efnum, strax og sólin sýnir sig eru allir komnir í stuttbuxur og með bjór.

Aðsend.

Hvaða ferðamáta notast þú við?

Ég labba aðallega þar sem þetta er frekar lítil borg en inn á milli nota ég rafhlaupahjól. Ég keyri bara þegar ég fer út úr bænum en ég er enn að venjast þvi að keyra vitlausu megin á götunni.

Kemurðu oft til Íslands?

Ekki eins oft og ég myndi vilja. Það er bara flogið beint á veturna en annars þarf maður að fara til London sem getur verið mikið vesen.

Upplifir þú það sem kostnaðarsamara eða ódýrara að búa þarna? Hvernig þá?

Bristol er ekki jafn dýr og London en hún er að hækka í verði. Miðað við Ísland þá er hún aðeins ódýrari. 

Bjórinn er klárlega ódýrari.
Aðsend.

Hefurðu verið að fá mikið af heimsóknum út?

Stundum fæ ég heimsóknir út þegar ég er heppin, ég elska að sýna vinum mínum Bristol. Hins vegar er fólk oftar að fara til London þegar það gerir sér ferð út. 

Það er svo margt annað skemmtilegt við Bretland en bara London.

Er sterkt Íslendingasamfélag þar sem þú ert?

Ég hef ekki enn hitt annan Íslending í Bristol. 

Ég hef heyrt um einn eða tvo en því miður er ekkert Íslendingasamfélag.

Áttu þér uppáhalds stað?

Ég er orðin mjög skotin í Cornwall fyrir sunnan. Þar eru ofboðslega fallegar strandlengjur, rólegt andrúmsloft og mikið um sörf menningu. Það er alltaf gaman að komast út úr borgarbyggðinni.

Hvaða matsölustöðum myndir þú mæla með?

Eitt af því sem ég elska mest við Bristol er hvað það eru fjölbreyttir veitingastaðir hérna. Einn af mínum uppáhalds stöðum er kóreskur staður sem er staðsettur í uppbyggðri gáma samstæðu við ánna.

Hvað er eitthvað sem allir verða að gera á þessum stað?

Á sumrin er svakalega gaman að koma og rölta meðfram árbökkunum og ef þú ert djörf/djarfur/djarft þá er tilvalið að fara í loftbelgsferð yfir Bristol. 

Það er alltaf loftbelgja hátíð í ágúst. 

Á veturna er gaman að fara á jólamarkaði, bæði í Bristol og í Bath sem er næsti bær við.

Hvernig er týpískur dagur hjá þér úti?

Það er erfitt að segja til um týpískan dag, það er alltaf eitthvað nýtt í gangi í Bristol en ég reyni að fara mikið í útilegur eða niður við ströndina þegar ég fæ frí. Ef það er gott veður þá reyni ég að fara um helgar á bændamarkaðinn eða í göngur í skógunum sem eru hérna nálægt. 

Um eftirmiðdaginn er skemmtilegt að hitta vini niður í bæ við árbakkana með bjór og pizzu við hönd, horfa á sólsetrið og hlusta á fólk spila tónlist.

Aðsend.

Hvað er það besta við staðinn þinn?

Hvað það er mikið af grænum svæðum hérna og hvað það er mikið af allskonar týpum af fólki sem maður fær að kynnast. 

Þetta er fjölbreytt og listræn borg.
Rakel er dýrafræðingur og elskar starfið sitt.Aðsend.

Hvað er það versta við staðinn þinn?

Hvað það er erfitt að komast til Íslands.

Sérðu fyrir þér að flytja aftur til Íslands?

Ég elska litla Ísland en eins og er þá eru ekki margir möguleikar þar í boði til að vinna við dýralífsheimildamyndagerð, þannig ég þarf að halda mig erlendis í smá stund í viðbót.


Tengdar fréttir

„Ótrúlega erfitt að taka ákvörðun um að fara út“

Athafnamaðurinn Bergsveinn Ólafsson ákvað að taka stökkið í haust og flytja út til Claremont í Kaliforníu þar sem hann mun stunda doktorsnám í sálfræði við Claremont Graduate University. Hann er nýlentur í ævintýrinu og ræddi við Vísi um það sem býður hans í nýja heimalandinu.

Stökkið: „Það er mikið um duglega vasaþjófa“

Hilmar Ragnarsson starfar sem forritari í Barcelona þar sem hann býr með unnustu sinni Raphaellu Santana og hundinum þeirra Nölu. Hilmar flutti upphaflega til Madríd haustið 2015 í skiptinám en kom aldrei heim og færði sig yfir til Barcelona þremur árum síðar.

Stökkið: „Andlega var ég gríðarlega tilbúin að flytja út“

Selma Soffía Guðbrandsdóttir flutti til Spánar fyrir tveimur árum til þess að fara í nám en ákvað eftir námið að vera þar áfram og starfar í dag sem þjónustustjóri (e. Client services manager) hjá fyrirtæki í Marbella sem leigir út lúxus villur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×